Erlent

Vara við hættu­legri orð­ræðu stuðnings­manna Trump

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kari Lake hafði beínlínis í hótunum við forseta og dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Kari Lake hafði beínlínis í hótunum við forseta og dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. epa/Etienne Laurent

Sérfræðingar eru uggandi vegna orðræðu stuðningsmanna Trump í kjölfar þess að ákærur voru gefnar út á hendur honum í tengslum við leyniskjöl sem hann tók úr Hvíta húsinu, faldi á heimili sínu í Flórída og neitaði að afhenda þegar eftir því var leitað.

„Ég er með skilaboð til Merrick Garland og Jack Smith og Joe Biden, og þið hjá falsmiðlunum ættuð að leggja við hlustir, þetta er til ykkar líka; ef þið viljið ná til Trump forseta þá verðið þið að fara í gegnum mig og 75 milljónir Bandaríkjamanna eins og mig. Og ég segi ykkur; flest okkar eru meðlimir í N.R.A,“ sagði Kari Lake á ríkisráðstefnu Repúblikanaflokksins í Georgíu á dögunum.

Viðstaddir fögnuðu mjög orðum Lake, sem er einarður stuðningsmaður Trump og fór að dæmi hans þegar hún neitaði að játa sig sigraða í ríkisstjórakosningunum í Arizona í fyrra. Garland er dómsmálaráðherra og Smith saksóknarinn í fyrrnefndu dómsmáli.

„Auga fyrir auga,“ sagði Andy Biggs á Twitter, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Arizona, á föstudag. „Hefndin er á næsta leiti,“ hótaði Kimberly Guilfoyle, unnusta elsta sonar Trump, í hástöfum á Instagram.

Þetta eru aðeins nokkur dæmi um orðræðun sem sérfræðingar segja beinlínis hættulega; hún geti bæði leitt til ofbeldis með beinum hætti og orðið til þess að skapa ógnvænlegt andrúmsloft, sérstaklega ef henni er ekki svarað.

„Hingað til hafa stjórnmálamenn sem hafa notað svona orðræðu til að hvegja fólk til ofbeldisverka ekki verið látnir sæta ábyrgð,“ segir Mary McCord, sem hefur rannsakað tengslin milli öfgakenndrar orðræðu og ofbeldis, í samtali við New York Times. 

„Þar til það gerist er fátt sem letur fólk til að nota svona orðalag,“ segir hún.

Þáttastjórnandinn Pete Santilli sagði að ef hann væri yfirmaður í hernum myndi hann skipa hverjum einasta landgönguliða að grípa Biden Bandaríkjaforseta, binda hann og henda í skottið og koma honum úr Hvíta húsinu.

Einn gesta hans sagði að ef það væri löglegt myndi hann líklega skjóta yfirmann herforingjaráðsins, sem Trump hefur lýst óbeit sinni á.

Sérfræðingarnir segja orðræðu og hótanir á borð við þessar munu fjölga þegar nær dregur fyrirtöku dómsmálsins á hendur Trump og forsetakosningunum á næsta ári.

Timothy J. Heaphy, sem fór fyrir rannsókn þingnefndar á árásinni á þinghúsið í Washington, bendir á að gerendurnir sem voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina hafi komið að þinghúsinu að áeggjan forsetans og annarra pólitíkusa.

„Stjórnmálamenn halda að þegar þeir segja eitthvað þá sé það bara orðagjálfur en fólk hlustar á þetta og tekur þetta alvarlega. Stjórnmálamenn þurfa að gera sér grein fyrir því í þessari stemningu sem nú ríkir og hegða sér ábyrgar.“

Hér má finna ítarlega umfjöllun New York Times.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×