Erlent

Víg­reift af­mælis­barn sakar Biden um spillingu og að grafa undan lýð­ræðinu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ákærurnar á hendur Trump virðast ekki hafa haft áhrif á stuðning við hann í forvali Repúblikana.
Ákærurnar á hendur Trump virðast ekki hafa haft áhrif á stuðning við hann í forvali Repúblikana. AP/Andrew Harnik

„Það var verið að ákæra mig. Dásamlegur afmælisdagur,“ sagði Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína við gólfklúbb sinn í New Jersey í gær, eftir að hann var ákærður fyrir óvarlega meðferð leyniskjala.

Stuðningsmennirnir sungu afmælissönginn fyrir Trump, sem verður 77 ára í dag.

Trump fór mikinn í ræðu sinni; sakað Joe Biden Bandaríkjaforseta um að standa að baki ákærunum og gekk svo langt að halda því fram að hans, Bidens, yrði minnst sem „ekki bara spilltasta forseta í sögu landsins okkar heldur, og jafnvel enn mikilvægar, sem eina forsetans sem freistaði þess með nánustu þrjótum sínum, utangarðsmönnum og Marxistum að rústa lýðræðinu í Bandaríkjunum“.

Þá sagði Trump saksóknarann í málinu, Jake Smith, sturlaðan þrjót.

Trump hefur nú verið ákærður í tveimur málum; vegna leyniskjalanna sé hann hafði með sér úr Hvíta húsinu og vegna mútugreiðsla til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Rannsóknir standa enn yfir í tengslum við tilraunir hans til að hafa áhrif á úrslit forsetakosninganna 2020.

Engu að síður sýna niðurstöður skoðanakönnunar Reuters/Ipsos sem lauk á mánudag að um 80 prósent Repúblikana telur ákærurnar á hendur Trump pólitískar og þá virðast þær ekki hafa komið niður á stuðningi við Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári.

Það vekur athygli að á Fox News, sem virtist hafa tekið U-beygju og látið af yfirlýstum stuðningi við Trump, mátt í gær sjá borða fyrir neðan tvískiptan skjá, sem sýndi annars vegar myndskeið af ræðu Trump í New Jersey og hins vegar af ræðuhöldum Biden í Hvíta húsinu, þar sem stóð: „Upprennandi einræðisherra talar í Hvíta húsinu eftir að hafa látið handtaka pólitískan andstæðing“.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×