Fótbolti

Brasilía mætir Spáni í vináttuleik til að berjast gegn rasisma í garð Vinícius

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Vinícius Júnior hefur ítrekað þurft að þola kynþáttafordóma í spænsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili.
Vinícius Júnior hefur ítrekað þurft að þola kynþáttafordóma í spænsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili. Diego Souto/Quality Sport Images/Getty Images

Brasilía og Spánn munu mætast í vináttulandsleik í mars á næsta ári þar sem markmiðið verður að berjast gegn kynþáttafordómum sem Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid og brasilíska landsliðsins, hefur þurft að þola á Spáni.

Leikurinn mun fara fram á Santiago Bernabéu, heimavelli Real Madrid, en Vinícius mátti ítrekað þola kynþáttafordóma er hann lék með liðinu á nýafstöðnu tímabili.

Nýjasta dæmi þess að Vinícius hafi mátt þola kynþáttafordóma í spænsku deildinni kom í leik Real Madrid gegn Valencia þann 21. maí síðastliðinn. Madrídingar töuðu leiknum, 1-0, og Vinícius fékk sig að lokum fullsaddan og gagnrýndi spænsku deildina harðlega í kjölfar leiksins.

Leikmaðurinn sagði meðal annars að deildin tilheyrði rasistum og hótaði því að yfirgefa landið. Javier Tebas forseti deildarinnar, svaraði leikmanninum hins vegar fullum hálsi og sagði gagnrýni Vinícius ósanngjarna og að spænska úrvalsdeildin berðist með kjafti og klóm gegn rasisma.

Hins vegar hafa sjö verið handteknir á nýafstöðnu tímabili fyrir kynþáttaníð í garð Vinícius, þrír eftir leik Real Madid og Valencia og fjórir í tengslum við að hengja brúðu í líki leikmannsins fram af brú í aðdraganda borgarslags Real og Atlético Madrid í spænska konungsbikarnum í janúar.

Vírus sem smánar alla tengda fótbolta

Nú hafa þeir Luis Rubiales, forseti spænska knattspyrnusambandsins, og kollegi hans hjá brasilíska knattspyrnusambandinu, Ednaldo Rodrigues, hrundið af stað herferð í baráttunni gegn kynþáttafordómum undir nafninu „One Skin“.

„Það er mikilvægt að skilja að við þurfum að geta beitt harðari refsingum ef einhver verður uppvís af því að beita leikmenn kynþáttaníði,“ sagði Rodrigues.

„Það er ekki nóg að sekta viðkomandi. Félögin þurfa einnig að taka ábyrgð.“

„Brasilíska knattspyrnusambandið var fyrsta sambandið til að innleiða harðari refsingar í slíkum tilfellum. Refsingar á borð við það að draga stig af liðunum, loka áhorfendastúkum eða setja stuðningsmenn í lífstíðarbann.“

„Við þurfum að leiða herferð um allan heim til að berjast gegn þessum vírus sem smánar alla tengda fótbolta,“ sagði Rodrigues að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×