Fótbolti

Leikmaður Malmö fékk dóm fyrir ölvunarakstur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sergio Pena fór á rúntinn eftir að hafa fengið sér í tána.
Sergio Pena fór á rúntinn eftir að hafa fengið sér í tána. getty/Peter De Voecht

Leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Malmö hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir akstur undir áhrifum áfengis.

Í apríl stöðvaði lögreglan Sergio Pena, miðjumann Malmö, fyrir hraðakstur. Hann var færður á lögreglustöð og látinn blása. Þá kom í ljós að hann var með áfengi í blóðinu. Jafnframt var hann bara með perúskt ökuskírteni en ekki sænskt.

Fyrir dómi sagðist Pena hafa farið út að borða með vinkonu sinni kvöldið þennan örlagaríka dag.

„Ég hélt að ég væri ekki drukkinn. Ég gerði mistök sem ég sé eftir en þetta er í fyrsta sinn sem þetta gerist. Að einhverju leyti var þetta mín sök því mér varð á í messunni. En ég er ekki glæpamaður,“ sagði Pena í réttarhöldunum.

Pena hefur fengið að spila með Malmö frá því atvikið átti sér stað en var sektaður um mánaðar laun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×