Sport

Barnabarn mafíósans í sex mánaða bann fyrir slagsmálin við Mayweather

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bardagi Floyds Mayweather og Johns Gotti III leystist upp í vitleysu.
Bardagi Floyds Mayweather og Johns Gotti III leystist upp í vitleysu. vísir/getty

John Gotti III hefur verið dæmdur í sex mánaða bann eftir að hafa stofnað til slagsmála eftir sýningarbardaga gegn Floyd Mayweather.

Gotti, sem er barnabarn mafíuforingjans alræmda John Gotti frá New York, brást illa við þegar dómari stöðvaði bardaga þeirra Mayweathers í sjöttu lotu vegna orðaskaks og munnsöfnuðar bardagakappanna.

Gotti réðist á Mayweather og í kjölfarið brutust út slagsmál. Talið er að um fimmtíu manns hafi tekið þátt í þeim og náðu þau alla leið inn í búningsklefa. 

Eftir bardagann birti Gotti færslu á Instagram þar sem hann sagði að Mayweather væri óvinur hans til lífstíðar. Hann óskaði einnig eftir hjálp frá Conor McGregor sem Mayweather sigraði í bardaga fyrir sex árum.

Gotti hefur nú verið dæmdur í sex mánaða bann fyrir sinn þátt í ólátunum. Mayweather slapp hins vegar við refsingu.

Gotti átti erfitt uppdráttar í bardaganum og var í vandræðum með að verjast árásum Mayweathers, bæði með hnefunum og kjaftinum. Dómari bardagans bað Gotti og aðstoðarmenn hans að róa sig niður og hætta að rífa kjaft. Á endanum gafst hann upp og stöðvaði bardagann, Gotti til mikils ama.

Hann skaut á dómarann á samfélagsmiðlum og sagði að hann hefði stöðvað bardagann að ósekju. Systir Gottis, Nicolette, gekk enn lengra og sendi ógnandi skilaboð til dóttur Mayweathers.

Bardaginn um helgina var sjöundi sýningarbardaginn sem Mayweather tekur þátt í eftir að hann lagði hanskana á hilluna 2017.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×