Innlent

Lumbraði á löggu í öl­æði

Árni Sæberg skrifar
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands þann 6. júní.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands þann 6. júní. Vísir/Vilhelm

Karlmaður á Austurlandi hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að kýla lögregluþjón.

Í dómi Héraðsdóms Austurlands segir að maðurinn hafi verið handtekinn í september í fyrra nálægt heimili sínu á ótilgreindum stað á Austurlandi. Samkvæmt lögregluskýrslu var maðurinn mjög ölvaður og æstur í þokkabót.

Í frumskýrslu fjögurra lögreglumanna, sem afskipti höfðu af manninum á lögreglustöð bæjarins, segir að maðurinn hafi verið í annarlegu ástandi og að hann hafi meðal annars viðhaft svigurmæli og ógnandi hegðun, þar á meðal eftir að hann hafði verið færður í fangaklefa.

Fram kemur að fylgst hafi verið með manninum í klefanum af öryggisástæðum, en hljóð-og myndefni þar um eru á meðal rannsóknargagna. Samkvæmt gögnum var meðal annars haft tal af manninum í gegnum lúgu á klefahurð nokkru eftir miðnætti og má meðal annars heyra í upptökum að maðurinn óskar eftir því að fá að fara á salerni,en er neitað af öryggisástæðum. 

Piparúði olli vandræðum

Vegna atgangs og aðgerða mannsins tókst lögreglumönnum ekki að loka fyrrnefndri lúgu og voru klefadyrnar því opnaðar. 

Maðurinn brást þá skjótt við og í framhaldinu af því urðu átök með honum og tveimur lögreglumönnum. Maðurinn var færður á gólfið með valdi og piparúða var úðað á hann. 

Ekki fór betur en svo að úðinn fór einnig yfir annan lögreglumanninn sem olli því að hinn var í stuttan tíma einn með manninum. 

Lögreglumaðurinn sat ofan á manninum og heldur um hendur hans þar sem hann liggur á bakinu. Við þessar aðstæður náði maðurinn að losa um hægri hönd sína og kýla í framhaldi af því á gagnauga og vinstri augabrún lögreglumannsins. Lögreglumaðurinn hlaut af þessu skurð á vinstri augabrún, mar á efra augnloki og mar á vinstra kinnbeini.

Maðurinn játaði brot sitt skýlaust og því var maðurinn sakfelldur án frekari sönnunarfærslu.

Maðurinn var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar, sem var skilorðsbundin til þriggja ára. Þá var maðurinn dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað, alls 619 þúsund krónur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×