Lífið

Ís­lensk sund­stjarna slær í gegn á gramminu

Íris Hauksdóttir skrifar
Emilía Madeleine Heenen með sundstjörnuna Önnu Elínu.
Emilía Madeleine Heenen með sundstjörnuna Önnu Elínu. aðsend

Myndband sem sýnir hina ungu og efnilegu sundkonu, Önnu Elínu, spreyta sig í ungbarnasundi hefur vakið stormandi lukku innan samfélagsmiðla. Móðir hennar, Emilía Madeleine Heenen, segist undrandi á viðtökunum en myndbandið hefur nú fengið yfir 40 milljón áhorfa. 

„Ég vissi sjálf hvað Anna Elín er sæt en datt aldrei í hug að þetta myndband myndi fá svona mikla athygli," segir Emilía og heldur áfram. „Við fjölskyldan byrjuðum í ungbarnasundi hjá Snorra þegar Anna Elín var þriggja mánaða en hún er fædd 2. janúar á þessu ári. 

Anna Elín elskar að synda en hún kom í heiminn í byrjun árs á þessu ári.aðsend

Hún gjörsamlega elskar að vera í vatninu og eins og heyrist í myndbandinu er ég rosalega stolt af henni. 

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan:

Fólk hvaðan af úr heiminum hafa skrifað athugasemdir undir myndbandið og sumir jafnvel furðað sig á íslenskri sundkennslu ungbarna, sjálf segist Emilía ekki kippa sér mikið upp við slíkar athugasemdir. „Ég var með fáa fylgjendur og bjóst ekki við nema nokkrum lækum frá okkar nánasta fólki en það reyndist ekki raunin. Myndbandið hefur greinilega náð til mikils fjölda fólks en á einni nóttu var áhorfið komið yfir þúsund. Núna eru þau fjörutíu og ein milljón." 

Litla fjölskyldan sem varð fræg á einni nóttu. Emilía og Anna Elín ásamt Benedikt Karlssyni föður stúlkunnar.aðsend

Emilía viðurkennir þó að tilhugsunin sé hálf súrealísk. 

„Það er skrítið að sjá þetta springa svona út en við foreldrarnir vitum auðvitað hvað hún er sæt og dugleg en það er gaman að sjá hvað öllum heiminum finnst það líka. 

Það er líka fyndið að fylgjast með athugasemdunum sem fólk skrifar og greinilega misjafnar skoðanir. Skiljanlega af því ungbarnasund þekkist ekki annarstaðar í heiminum og það að sjá fimm mánaða gamalt barn standa upp í lofti á bretti, skælbrosandi, er ekki beint venjulegt fyrir mörgum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×