Innlent

Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju eins manns

Heimir Már Pétursson skrifar
Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju Kristjáns Loftssonar og undrast að ímynd Íslands eigi að stjórnast af vilja hans.
Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju Kristjáns Loftssonar og undrast að ímynd Íslands eigi að stjórnast af vilja hans. Stöð 2

Paul Watson fyrrverandi leiðtogi Sea Shepard samtakanna sem sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 nálgast Íslandsmið til að trufla veiðar Hvals hf. í sumar. Hópur fólks úr Hvalavinum koma saman til mótmæla við hvalbátana seinni partinn í dag en nú er verið að undirbúa þá til veiða.

Watson segir að skip hans muni halda sig utan við tólf mílna mörkun og bíða hvalbátanna þar. En honum var bannað að koma til Íslands ævilangt eftir að hvalbátunum var sökkt.

„Hvaladráp er bannað samkvæmt alþjóðalögum og við erum að reyna að vernda dýrategund í útrýmingarhættu fyrir ólöglegu athæfi,“ segir Watson í Zoom viðtali frá skipi sínu sem er statt rétt utan við 200 mílna efnahagslögsögu Íslands.

Þrjátíu og tveir eru í áhöfn John Paul Dejoria, skips Paul Watson, og koma frá tólf þjóðríkjum.Paul Watson samtökin

Óttastu að Landhelgisgæslan muni taka þig fastan ef þú ferð inn fyrir tólf sjómílna lögsöguna?

„Þá yrðum við að fara inn fyrir 12 mílurnar, en það hyggjumst við ekki gera. Ég er kannski alræmdur en ég hef ekki framið glæp á Íslandi. Við sökktum hvalveiðiskipunum árið 1986 en Ísland kaus að ákæra mig ekki. Engin ákæra var gefin út, engin réttarhöld og því enginn glæpur,“ segir Watson.

Þú fékkst ævilangt bann við komu til landsins?

„Ísland óttast í raun að koma fyrir rétt fyrir „ólöglegt“ athæfi Watsons gegn hvalveiðiflotanum. Hvalveiðar hafa verið ólöglegar frá 1986. Ég kom til Reykjavíkur árið 1985 og sagði að við myndum ekki gera neitt fyrr en 1986 þegar hvalveiðibannið gengi í gildi. Þegar árið 1986 gekk í garð skutuð þið 96 hvali. Við svöruðum þessu með því að sökkva hálfum flotanum.,“ segir Watson

Hvað muntu reyna að gera til að stöðva veiðarnar?

„Hindra að skutlarnir hitti í mark eins og svo oft áður. Þetta snýst ekki um Ísland eða Íslendinga heldur snýst þetta um einn mann, Kristján Loftsson sem er heltekinn af því að drepa hvali. Hann er eins og nútímaútgáfan af Ahab skipstjóra. Ég sé ekki hvers vegna orðspor Íslands eigi að skaðast af völdum þessa mjög svo sjálfselska manns,“ segir Paul Watson.


Tengdar fréttir

Fagráð um vel­ferð dýra segir hval­veiðar ekki sam­ræmast lögum

Fagráð um velferð dýra hefur komist að þeirri niðurstöðu að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki ákvæðum laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Ekki sé hægt að uppfylla þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að tryggja velferð dýra við aflífun.

Hvalveiðar sagðar hefjast í næstu viku

Veiðar starfsmanna Hvals hf. á langreyði munu hefjast næsta miðvikudag. Það er viku eftir að Heilbrigðisnefnd Vesturlands samþykkti að endurnýja starfsleyfi fyrirtækisins vegna hvalastöðvarinnar í Hvalfirði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×