Fótbolti

Guðni: Þetta var erfiður sigur

Hinrik Wöhler skrifar
Guðni á hliðarlínunni í kvöld.
Guðni á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var að vonum sáttur með 2-1 sigur á ÍBV á Kaplakrikavelli í níunda umferð Bestu deildar kvenna. Þetta var í annað sinn á sex dögum sem liðin mætast og í bæði skiptin sigraði FH en í þetta sinn var sigurinn torsóttari fyrir Hafnfirðinga.

„Við þurftum að fara aðeins út úr leikplaninu til að landa þessu. Þetta var erfiður sigur og við þurftum virkilega að hafa vel fyrir þessu,“ sagði Guðni skömmu eftir leik.

Staðan var jöfn í hálfeik, 1-1, og reyndist síðari hálfleikur frekar lokaður og lítið um marktækifæri. Heimakonur náðu þó að skora sigurmarkið beint úr hornspyrnu þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.

„Við ætluðum bara að sækja í þau svæði sem við töldum ÍBV vera veikar fyrir og reyndum að gera það. Þær þéttu mjög og gerðu það svo sem í fyrri hálfleik líka. Þær voru með þéttar varnarlínur og beittu löngum boltum, það kom ekkert á óvart og við vissum að þær myndu fara í þannig leik. Við þurftum þá að standa það af okkur þegar þær unnu boltann og lúðruðu honum fram.“

Lið FH er í góðum málum í Bestu deild kvenna.Vísir/Hulda Margrét

Nýliðar FH hafa komið flestum á óvart í deildinni og sitja í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig þegar fyrri umferðin af hefðbundinni deildarkeppni er lokið.

„Ég get ekki verið annað en sáttur. Liðið er á góðum stað og á meðan við erum að sækja sigra og safna stigum þá er það jákvætt. Það er mjög sterkt að ná að sækja sigra þegar við þurfum virkilega að hafa fyrir því og það gengur ekki allt saman upp og framvegis,“ sagði Guðni þegar hann var spurður út í árangurinn hingað til.

FH hefur nú sigrað fjóra leiki í röð ásamt því að vera komið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum.

„Það er mjög flókið að vinna leik eftir leik. Það er gríðarlega erfitt að gera það og hvatningin þarf að vera rétt og ansi margt að ganga upp ef að lið á að vinna leik eftir leik,“ sagði Guðni að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×