Íslenski boltinn

„Um­mæli mín sverta ekki ís­lenska knatt­spyrnu, svona dómgæsla gerir það“

Aron Guðmundsson skrifar
Bríet Bragadóttir dæmdi leik Vals og ÍBV í síðasta mánuði og gagnrýndi Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, frammistöðu hennar.
Bríet Bragadóttir dæmdi leik Vals og ÍBV í síðasta mánuði og gagnrýndi Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, frammistöðu hennar. Vísir/Samsett mynd

Knattspyrnudeild ÍBV hefur verið látið sæta sekt að upphæð 100 þúsund krónum vegna opinberra ummæla formanns knattspyrnudeildar félagsins, Daníels Geirs Moritz, sem eru talin vega að heiðarleika og heilindum dómarans í leik Vals og ÍBV í Bestu deild kvenna í síðasta mánuði.

Umrædd ummæli lét Daníel Geir falla í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter og birti hann í þeirri færslu texta sem og myndband af atviki í leik Vals og ÍBV. 

„Olga Sevcoca er leikmaður ÍBV. Hún er frá Lettlandi. Allar götur síðan hún kom til Íslands hefur mátt sparka í hana af meiri krafti en aðra leikmenn. Í gær sleppir dómari af ásetningi vítaspyrnu þar sem Olga er spörkuð niður. Þetta er ekki tilviljun en algjörlega óþolandi," skrifaði Daníel Geir í umræddi færslu. 

Ummælin voru tekin fyrir á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ þann 13. júní síðastliðinn og er það mat nefndarinnar að Daníel hafi með færslu sinni vegið að heiðarleika og heillindum dómara leiksins, Bríeti Bragadóttur, og séu til þess fallin að skaða ímynd íslenskrar knattspyrnu.

Stendur við orð sín

Í tengslum við ákvörðun sína tekur aga- og úrskurðarnefnd KSÍ meðal annars til greina bréf Daníels Geirs til nefndarinnar, bréf sem nefndarmenn segja ekki bera merki iðrunar vegna hinnar kærðu „ósæmilegu framkomu.“

Í bréfinu, sem birt er með úrskurði nefndarinnar, segist Daníel standa við orð sín þess efnis að dómari leiksins hafi af ásetningi sleppt því að dæma víti í umræddum leik.

„Í dómari leiksins sér atvikið mjög vel en ákveður að dæma vitlaust gegn betri vitund. Þarna er ekki hægt að skýla sér á bakvið mistök, rétt eins og urðu í leik Stjörnunnar og ÍBV á dögunum þar sem dómari sá ekki atvik. Dómarinn sér þetta mjög vel en dæmir ekki víti.“

Daníel segir ummæli sín ekki sverta íslenska knattspyrnu.

„En svona dómgæsla gerir það og hafði þetta neikvæð áhrif á það lið sem ég er í forsvari fyrir. Ég hlýt að mega benda á það.“

Úrskurð aga- og úrskurðarnefndar KSÍ má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×