Innlent

„Neyðin er mikil hjá gælu­dýrum á Ís­landi“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Formaður Dýrfinnu hvetur fólk í leit að gæludýrum á heimilið til þess að ættleiða eldri dýr. Dýraathvörf eru full af dýrum sem vantar ný heimili.
Formaður Dýrfinnu hvetur fólk í leit að gæludýrum á heimilið til þess að ættleiða eldri dýr. Dýraathvörf eru full af dýrum sem vantar ný heimili. Vísir/Vilhelm

Dýra­at­hvörf hér­lendis fyrir heimilis­laus dýr eru full og til­vikum þar sem gælu­dýr eru skilin eftir á ver­gangi fer fjölgandi. Þetta segir for­maður Dýr­finnu, sem segir neyðina mikla og hvetur fjöl­skyldur til þess að í­huga frekar að taka að sér eldri dýr frekar en þau yngri. Hús­næðis­markaðurinn og strangar reglur um gælu­dýra­hald spili stóran þátt í neyð dýranna.

„Neyðin er mikil hjá gælu­dýrum á Ís­landi og það vilja allir kettlinga og hvolpa á meðan dýr sem eru eldri en eins árs sitja eftir,“ segir Anna Margrét Ás­laugar­dóttir, for­maður Dýr­finnu í sam­tali við Vísi. Fjölda dýra í at­hvörfum nú rekur hún til vin­sælda gælu­dýra í heims­far­aldrinum en einnig til strangra reglna um gælu­dýra­hald.

„Við erum að sjá mikið meira um það núna að fólk er að losa sig við dýrin og fólk virðist meðal annars vera farið að skilja dýr eftir úti og eftir far­aldurinn höfum við til dæmis fundið ketti á ver­gangi sem eru ógeldir, ó­merktir og hafa ekki farið í neinar læknis­heim­sóknir sem brýtur auð­vitað gegn katta­sam­þykktum allra sveitar­fé­laga.“

Hún segir gælu­dýra­hald ekki leyfi­legt í stærstum hluta leigu­í­búða. „Og við vitum um dæmi þar sem fólk sem átt hefur gælu­dýr í leigu­í­búð í mörg ár þarf skyndi­lega að gefa frá sér fjöl­skyldu­með­limi til þess að lenda hrein­lega ekki á götunni. Er­lendis gera leigu­salar víða samning við leigu­taka um greiðslu ef gælu­dýr valda skemmdum. Það væri breyting til batnaðar að sjá þetta hér af því að þetta eru engin villi­dýr, þetta eru gælu­dýr.“

Anna Margrét hvetur þá sem eru í leit að gæludýrum til þess að taka að sér eldri dýr.Vísir

Hvetur fólk til að í­huga að taka að sér eldri dýr

Anna hvetur fólk til þess að koma gælu­dýrum sínum fyrir á við­eig­andi stað ef það er ekki lengur pláss fyrir þau á heimilum. Hægt sé að tala við hina ýmsu aðila líkt og Katt­holt, Villi­ketti og Dýra­hjálp Ís­lands þar sem alltaf sé vilji til að finna út úr málunum.

„Það að taka að sér dýr sem er orðið eins árs eða eldra getur verið miklu auð­veldara, meira gefandi go skemmti­legra en að taka að sér ung­viði,“ segir Anna og segir fleiri upp­lýsingar fyrir hendi um það hvers konar karakter við­komandi gælu­dýr sé.

„Kettlingar til dæmis eiga enn eftir að mótast og eru oft teknir of snemma af læðunni og hafa þá ekki fengið alla kennsluna sem þeir þurfa. Þá lendir fólk í at­ferlis­vanda­málum þar sem kettlingar til að mynda stökkva á alla sem labba fram hjá og bíta í ökkla. Kettlingar þurfa gríðar­lega mikla örvun og um­hverfis­þjálfun, sem er ekki fyrir alla.“

Eldri dýr þurfi ekki eins mikla yfir­setu og um­sjá. „Og eru gjörn á að sýna þakk­læti sitt og skila því marg­falt til baka til nýrra eig­enda.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×