Lífið

Vellystingar í ferðalögum frægra Íslendinga

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það væsir ekki um ungstirni Íslands erlendis.
Það væsir ekki um ungstirni Íslands erlendis.

Ríkmannleg frí þar sem allt er til alls á vel við þegar skærustu stjörnur Íslands fara erlendis. Hvítar strendur, einkasigling og merkjavörur eru oftar en ekki í hávegum.

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, er staddur á grísku eyjunni Mykonos með kærustunni Friðþóru Sigurjónsdóttur.

Af myndum að dæma er óhætt er að segja að parið sé að njóta frísins þar sem þau gista af lúxus hótelinu, Tropicana Hotel, Suites og Villas Mykonos, þar sem þau eru með einkasundlaug og stórbrotið útsýni út á sjó.

Á bókunarvef Booking.com segir að slíkt hótelherbergi kosti um það bil 90 þúsund krónur nóttin.

Parið hefur deilt fjölda mynda með fylgjendum sínum bæði í hringrásinni (e.story) á Instagram og birt myndir sem gefa fólki sýn inn í fallegt umhverfi þar sem sólin og blár himinn leikur við þau.

Kærastan fegin að hafa kynnst Patrik fyrir Prettyboitjokko

Sundskýla Patriks frá ítalska tískurisanum Versace, slík skýla kostar tæpar 27 þúsund íslenskar krónur.

Patrik spókar sig um í sundskýlu frá ítalska merkinu Versace.Patrik Atlason
Gríska eyjan Mykonos er umvafin fallegum ströndum.Patrik Atlason
Hvítar bygginar eru eitt af einkennum eyjunar.Patrik Atlason
Notalegt að vera með einkalaug við hótelberbergið.Patrik Atlason
Fallegt útsýni er frá hótelinu.Patrik Atlason
Friðþóra tók sundsprett í lauginni.Patrik Atlason
Svartur netakjóll yfir sundfötin er alltaf smart.Patrik Atlason
Friðþóra glæsileg á veitingastað.Patrik Atlason
Einstakt útsýni af veröndinni.Friðþóra
Einstakt útsýni úr sundlauginni.Friðþóra

Kampavín og einkasigling

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Sunneva Einarsdóttir nýtur lífisins í sólinni í bænum Saint Laurent D'eze í Frakklandi, með kærastanum Benedikt Bjarnasyni, og vinkonunum og áhrifavöldunum, Jóhönnu Helgu Jensdóttur, Birtu Líf Ólafsdóttur og Evu Einarsdóttur.

Sunneva Einars slær sér upp með syni ráðherra

Vinahópurinn birti myndir í hringrásinni (e. story) á samfélasmiðlinum Instagram þar sem mátti sjá þegar þau sigldu um frönsku rívíeruna í sól og blíðu, stukku í sjóinn og drukku kampavín af tegundinni, Champagne Nicolas Feuillatte.

Þá spókuðu vinkonurnar sig um götur bæjarins og gerðu vel við sig í mat og drykk á huggulegum veitingastöðum.

Drykkir á ströndinni.Eva Einarsdóttir
Sunneva starir út á hafið.Sunneva Einars
Birta Líf kann að njóta.Birta Líf Ólafsdóttir
Benedikt tilbúinn að fara brettið.Sunneva Einars
Jóhanna slakar á með drykk.Sunneva Einars
Við stendur Mónakó.Sunneva Einars
Fallegar litlar götur í bænum Saint Laurent D'eze.Sunneva Einars
Stelpurnar smökkuðu trufflur.Sunneva Einars
Kúlúís í sólinni.Sunneva Einars


Tengdar fréttir

Súkkulaðierfingi sem saknar ekki áfengisins

„Ég vaknaði bara einn daginn eftir djamm og það var eins og einhver hafi komið inn í svefnherbergið til mín í draumi eða eitthvað og sagt mér að hætta að drekka,“ segir tónlistarmaðurinn Patrik Atlason sem sagði skilið við áfengi fyrir um ári síðan.

Sunneva og Jóhanna á heimavelli í fatabúð

Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir fóru af stað með nýja þáttaröð af #Samstarfi á Stöð 2 í síðasta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×