Samstarf

Nor­mX: Heitir og kaldir pottar fyrir ís­lenskar að­stæður

NormX
Í verslun NormX, í Auðbrekku 6 í Kópavogi, er hægt að skoða allar gerðir potta ásamt úrvali fylgi- og aukahluta fyrir pottinn og pottaferðina.
Í verslun NormX, í Auðbrekku 6 í Kópavogi, er hægt að skoða allar gerðir potta ásamt úrvali fylgi- og aukahluta fyrir pottinn og pottaferðina.

Heitir pottar hafa lengi verið vinsælir hérlendis, hvort sem þeir eru á heimilum landsmanna eða í sumarbústöðum. Undanfarin ár hafa svo kaldir pottar bæst við flóruna og notið sívaxandi vinsælda enda er talið að kalt vatnið geri fólki almennt gott.

NormX hefur yfir fjögurra áratuga reynslu af smíði heitra potta sem hafa fengið góðar viðtökur enda sameinast þar góð gæði og gott verð að sögn Orra Stefánssonar, sölu- og verslunarstjóri NormX. „Pottarnir okkar eru mjög sterkir og henta íslenskri veðráttu því mjög vel. Í því sambandi má nefna að það eru margir pottar frá okkur sem eru komnir vel á fertugsaldurinn enn eru í fullri notkun sem segir töluvert um gæði þeirra. Pottarnir eru framleiddir úr gegn heilu Polyethylene plasti með UV-vörn sem kemur í veg fyrir að sólin hafi áhrif á lit þeirra. Auk þess er mjög auðvelt að þrífa þá.“

Orri Stefánsson er sölu- og verslunarstjóri NormX.

Og ekki skemmir sanngjarnt verð bæti hann við. „Pottarnir okkar kosta frá 148.000 kr. en vinsælasti potturinn okkar, sem ber nafnið Grettislaug og er 1400 L., kostar 285.000 kr. Ég get alveg fullyrt að það sé erfitt að finna sambærilegan pott á svo góðu verði hér á landi.“

Utan Grettislaugar bera pottarnir frá NormX nöfnin Gvendarlaug, Unnarlaug, Snorralaug og Geirslaug, „Þeir eru misstórir og koma allir í þremur litum, dökkgráum, ljósgráum og bláum.“

Hægt er að klæða pottagrindurnar með marvíslegum efnum. Hér er notuð álklæðning.

Kaldir pottar njóta sívaxandi vinsælda

Kaldi potturinn ber nafnið Sigurlaug og kemur einnig í sömu þremur litunum. „Það er búið að vera ævintýralegt að fylgjast með auknum vinsældum köldu pottanna undanfarin ár. Nú eru kaldir pottar komnir í flestar stærri sundlaugar landsins og vinsældir sjósund hafa aukist mikið. Það kemur því ekki á óvart að sífellt fleiri kaupa kaldan pott til að nota heima eða jafnvel í sumarbústaðnum. Köld böð gera líkamanum svo gott, geta minnkað bólgur og flýtt fyrir endurheimt eftir erfiðar æfingar.“

NormX er rótgróið fyrirtæki sem fagnaði 40 ára afmæli á síðasta ári. Framleiðsla þess fer fram í verksmiðju NormX í Vogum á Vatnsleysuströnd en verslun og sýningarsalur er í Auðbrekku 6 í Kópavogi.

Persónuleg og góð þjónusta er í forgrunni hjá starfsfólki NormX að sögn Orra. „Það hefur m.a. í för með sér að sama fólkið mætir til okkar aftur og aftur þegar það skiptir um húsnæði eða fjárfestir í sumarhúsi. Viðskiptavinir okkar vita að hverju þeir ganga hér, úrvals vörum og góðri þjónustu.“

Flott tvenna. Það er alltaf að aukast að fólk taki kalda pottinn með þeim heita.

Gott úrval aukahluta

Ásamt því að bjóða upp á gott úrval af pottum býður NormX einnig upp á allt sem þarf til að koma sér upp potti á pallinn, t.d. hitastýringar, tengibúnað og burðargrindur undir pottana. „Burðargrindurnar okkar eru mjög vinsælar og einfalda málið mikið þegar kemur að því að ganga frá pottinum á pallinum. Grindurnar koma í nokkrum útfærslum auk þess sem hægt er að fá þær með lengingu á einni hlið sem er heppilegt ef fólk vill hafa pláss til að leggja lokið upp að vegg.“

Einnig er hægt að taka eitt eða fleiri horn af grindunum, allt eftir því hvernig fólk vill hafa uppsetninguna. „Grindurnar koma óklæddar þannig að fólk getur klætt þær með því efni sem það vill. Einnig má nefna að hægt er að bæta við nuddi í alla potta frá okkur.“

„Fljótum og njótum“ hengirúmin hafa svo sannarlega slegið í gegn og eru sívinsæl.

NormX býður upp á gott úrval aukahluta. Þar má helst nefna úrval af hitamælum, háfa í laufveiðar, bursta í þrifin, vatnsheld spil, klór og hreinsiefni. „Fljótandi „hengirúmin“ okkar hafa síðan slegið í gegn og njóta stöðugra vinsælda enda er frábær slökun að fljóta og njóta í þeim. Nýjasta viðbótin í aukahlutum eru mjög falleg og vönduð plastglös sem hafa heldur betur slegið í gegn. Þau eru tilvalin við pottinn, á pallinn eða í útileguna eða sem tækifærisgjöf.“

Nýjasta viðbótin í aukhlutum er frábær plastglös sem hafa slegið í gegn. Þau fást í nokkrum litum og gerðum.

Heimilið stækkað með einföldum hætti

Fyrir nokkru síðan hóf NormX sölu á vörum finnska framleiðandans Cover sem hefur verið leiðandi í framleiðslu svalaskjóla, garðskála og handriða í tæpa fjóra áratugi að sögn Orra. „Á landi þar sem er allra veðra von er frábært að geta stækkað stofuna með garðskála eða byggja hreinlega yfir svalirnar og njóta þeirra allt árið um kring. Íslendingar hafa mjög góða reynslu af lausnum frá Cover en hægt er að skoða sýnishorn í verslun okkar.“

Hægt að fá margar útfærslur af sólskálum og svalaskjólum.

Nánar á normx.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×