Lífið

Pexar við Oreo-kex um ósexý Ædol frá Max

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Abel Tesfaye, betur þekktur sem „The Wekeknd“, finnst gaman að gera glens á samfélagsmiðlum. Nýjasta útspil hans er að pexa við kexframleiðanda.
Abel Tesfaye, betur þekktur sem „The Wekeknd“, finnst gaman að gera glens á samfélagsmiðlum. Nýjasta útspil hans er að pexa við kexframleiðanda. EPA/Guillaume Horcajuelo

Tónlistarmaðurinn „The Weeknd“ lenti upp á kant við óvæntan aðila á Twitter í síðustu viku þegar fyrirtækið Oreo fagnaði því að sjónvarpsþættirnir The Idol yrðu ekki framlengdir. Eftir stutt pex við kexframleiðandann náðust sættir.

The Idol er nýjasta serían frá HBO (sem heitir brátt Max) og fjallar um ungu poppstjörnuna Jocelyn, leikin af Lily Rose-Depp, sem kynnist sjálfshjálpargúrúnum Tedros, leikinn af Abel „The Weeknd“ Tesfaye.

Abel Tesfaye, Lily Rose-Depp og Sam Levinson á Cannes-hátíðinni í maí 2023.EPA/Guillaume Horcajuelo

Tesfaye er allt í öllu í þáttunum en auk þess að leika aðalhlutverkið þá samdi hann tónlistina fyrir þættina, skrifaði handritið (ásamt öðrum) og er framleiðandi þeirra ásamt menningarbarninu Sam Levinson, sem gerði garðinn frægan með þáttunum Euphoria.

Serían sem fór í loftið í byrjun júní hefur hins vegar fengið ansi hreint slæmar móttökur hjá bæði áhorfendum og gagnrýnendum. Fólk virðist einna helst kvarta undan lélegum leiks hjá bæði Rose-Depp og Tesfaye, ósmekklegra og ónáttúrulegra kynlífssena og karlrembulegs og illa skrifaðs handrits.

Oreo fór ófögrum orðum um Ædol

Fyrir vikið hefur serían fengið slæma útreið á samfélagsmiðlum þar sem sniðugir netverjar keppast við að hæðast, gera grín og níða skóinn af þáttunum. Nýjasta viðbótin í hóp þeirra sem níðast á seríunni er stórfyrirtækið Oreo.

Þegar dægurmiðlafréttasíðan Pop Crave greindi (ranglega) frá því á Twitter 15. Júní að The Idol fengi ekki fá aðra þáttaröð svaraði Twitter-aðgangur Oreo með orðunum „Loksins einhverjar góðar fréttir.“

Fjórum dögum síðar hafði einhver annað dissað seríunni á Twitter með því að lýsa henni sem ljótri systur þáttanna White Lotus, Succession og The Last of Us. Aftur brást Oreo við með því að skrifa „Hvar er lygin?“

Þau ummæli hafa greinilega farið fyrir brjóstið á Tesfaye sem svaraði kex-framleiðandanum 21. júní með því að segja „Ekki láta mig dýfa þér í mjólk.“ Sama dag sá hann fyrri ummæli Oreo og tvítaði þá „Ó fokk, þau hafa verið að tala skít“.

Netverjar voru snöggir að bregðast við og furðuðu sig á því að jafnvinsæll og vel metinn tónlistarmaður skyldi leggjast svona lágt að deila við súkkulaðikex. Hann svaraði því með því að segja að hann væri svo feitur að hann hefði tekið því persónulega

Tesfaye var þó ekki lengi að jafna sig því ekki nema korteri síðan tvítaði hann „Neij, ég get ekki deilt við ykkur, Oreo. Of mikið af góðum minningum.... Ég ætla að dýfa ykkur í kampavín í kvöld.“

Þá svaraði kexið „Abel, þú veist að við myndum deyja fyrir þig, ekki núa því okkur um nasir.“ og þar með lauk pexinu. 

Hvort um var að ræða dulbúna auglýsingaherferð til að ginna fólk til að kíkja á The Idol eða einfaldlega tvo aðila sítengda netinu sem fannst sniðugt að lífga upp á daginn með tilgangslausu rifrildi er alls óvíst.


Tengdar fréttir

The We­eknd fleygir lista­manns­nafninu

Kanadíska popp­stjarnan The We­eknd hefur tekið upp sitt eigið nafn á sam­fé­lags­miðlum, Abel Tes­fa­ye, í stað síns heims­fræga nafns The We­eknd. Hann hefur áður rætt opin­skátt um að vilja losna undan lista­manns­nafninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×