Lífið

Langþráður draumur Röggu Hólm rættist

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Langþráður draumur Röggu Hólm rættist í Póllandi í gær.
Langþráður draumur Röggu Hólm rættist í Póllandi í gær. Aðsend

Langþráður draumur rapparans og plötusnúðarins Röggu Hólm rættist þegar hún sá átrúnaðargoðið og poppstjörnuna Beyoncé berum augum á tónleikum í borginni Varsjá í Póllandi í vikunni. 

„Ég er búin að fylgjast með henni síðan árið 1999 þegar hún var í Destiny's Child, þá er ég 12 ára og alveg dolfallin. Hún hefur alltaf verið uppáhalds artistinn minn og ég sá það ekki fyrir mér að ég myndi sjá hana með mínum eigin augum. Þetta er check af bucket listanum,“ segir Ragga í skýjunum eftir tónleikana.

Ragga fór ásamt kærastunni, Elmu Val­gerði Svein­björns­dótt­ur, á tónleikana sem voru haldnir á PGE Narodowy leik­vang­in­um í Var­sjá og eru hluti af tónleikakaferðalinu, Renaissance World Tour.

„Ég hef farið á marga tónleika en ég hafi aldrei séð annað eins. Við sátum mjög framarlega þar sem við ákváðum að gera vel okkur og keyptum VIP miða. Útsýnið var fullkomið. Mér finnst samt alltaf óraunverulegt að vera á svona stórtónleikum, það er eins og að ég hafi verið að horfa á þetta í sjónvarpinu,  svo bara var hún þarna,“ segir Ragga glöð.

Fimm metra hár hestur á sviðinu

„Þetta eru tónleikar sem ég gæti farið aftur og aftur á þar sem það var svo mikið i gangi allan tímann. Sumt sem átti sér stað á sviðinu tók maður ekki eftir. Á einum tímapunkti kom Beyoncé upp úr gólfinu á sviðinu en við tókum ekki eftir fyrr en við skoðuðum myndbandið þegar við vorum komnar upp á hótel,“ segir Ragga og bætir við: „Á einum tímapunkti var kominn stærðarinnar hestur á sviðið, um það bil fimm metra hár, bara sí svona.“

„Tónleikarnir voru um það bil þrjá klukkutíma og byrjuðu mjög rólega en eftir fyrstu fataskiptin hjá henni varð allt vitlaust. Þetta show er 10 af 10 mögulegum. Það var líka pínu fyndið að vita af tónlistarkonunni Lizzo í salnum en hún er að spila á tónlistarhátíð hérna í vikunni,“ segir Ragga alsæl með upplifunina.

Ragga og Elma keyptu svokallaða VIP miða og voru með frábært útsýni.Aðsend
Ragga hefur verið aðdáandi Beyoncé frá því hún var meðlimur hljómsveitarinnar Destiny's Child.Aðsend
Risavaxinn hestur birtist á sviðinu á miðjum tónleikum.Aðsend
Skjáskot/Instagram

Tvær stjörnur í höllinni

Tónlistarkonurnar og vinkonurnar Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir fóru einnig á tónleikana í Varsjá samt útvarpskonunni Völu Eiríksdóttur og Aldísi Ásgeirsdóttur. Vinkonurnar birtu fjölda myndskeiða á samfélagsmiðlum af herlegheitunum þar sem þær virtust skemmta sér konunglega. Á einu þeirra mátti sjá tónlistarkonua Lizzo sem stóð nokkrum metrum frá þeim. 

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram

Árshátíð og tónleikar í Amsterdam

Árshátíð Borgarleikhússins var haldin með pompi og prakt í Amsterdam á dögunum. Hluti hópsins ákvað að tvöfalda skemmtunina og fara á tónleka poppgyðjunar þar i borg. Þar má nefna leikkonuna Birnu Rún Eiriksdóttur, Írisi Dögg Einarsdóttur, ljósmyndara, Björn Stefánsson leikara og Vigdísi Maack.

Vinkonuhópar í Stokkhólmi

Í maí var Beyoncé stödd í Stokkhólmi í Svíþjóð og flykktust  íslenskir vinkonuhópar að borginni. Þar á meðal var Olga Lilja Bjarnadóttir förðunarfræðingur, Rósa María Árnadóttir, Hafdís Jónsdóttir, eiginkona Jóns Jónssonar, og vinkonur þeirra. 


Tengdar fréttir

Beyoncé og Blue Ivy á umdeildum tónleikum í Dubai

Tónlistarkonan og stórstjarnan Beyoncé kom fram á tónleikum í fyrsta skipti í rúm fjögur ár síðastliðið laugardagskvöld. Tilefnið var opnun á glænýju Atlantis The Royal hóteli í Dubai en Blue Ivy, dóttir Beyoncé, tók lagið með henni og skinu þær mæðgur skært.

Heitustu sumartrendin í ár

Sumarið er komið, svona á það að vera og sólin leikur stundum um mann, misjafnlega beran. Hér á Íslandi er sumartíðin gengin í garð óháð fjölbreyttu veðurfari en á sumrin þróast hin ýmsu skemmtilegu trend á ólíkum sviðum. Blaðamaður fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa til að reyna að komast að því hver heitustu trend sumarsins verða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×