Innlent

Rafmagnshlaupahjól orsök eldsvoðans

Eiður Þór Árnason skrifar
Altjón var á húsinu.
Altjón var á húsinu. vísir/vilhelm

Talið er að eldur sem kviknaði í timburhúsi við Blesugróf í Fossvogi í Reykjavík í gær hafi kviknað út frá rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu. Þetta er niðurstaða tæknideildar lögreglu sem rannsakaði vettvang brunans í dag en húsið er nú gjörónýtt.

RÚV greinir frá þessu en slökkviliðið hefur varað við því að fólk hlaði rafmagnshlaupahjól innanhúss þar sem fleiri dæmi eru um að eldur hafi kviknað út frá þeim. Fjórir voru innanhúss þegar eldur kviknaði en allir komust út af sjálfsdáðum.

Tilkynnt var um brunann laust eftir klukkan sex í gær og var allt tiltækt lið kallað út vegna eldsins. Um er að ræða tveggja hæða timburhús en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði í gær átti einhvers konar sprenging sér stað innanhúss. Um er að ræða gamalt hús sem flutt var af Hverfisgötu og síðar byggt við.

Mikinn reyk lagði frá húsinu og var þak þess rifið svo slökkvilið kæmist betur að eldinum. Lauk aðgerðum laust eftir miðnætti.

Eigandi hússins sagðist í samtali við fréttastofu í gær vera í miklu áfalli yfir því að hafa misst aleigu sína og æskuheimili barnanna. Íbúðin hafi verið í útleigu síðastliðið ár og staðið til að hún tæki aftur við lyklunum næsta laugardag.


Tengdar fréttir

Tæknideild rannsakar vettvang í dag

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæði mun í dag rannsaka vettvang bruna sem varð í Blesugróf í Fossvogi í gærkvöldi. Tilkynnt var um brunann laust eftir klukkan sex og lauk aðgerðum laust eftir miðnætti.

Í áfalli yfir að hafa misst æskuheimili barna sinna

Eigandi tveggja hæða timburhúss við Blesugróf 25 í Fossvogshverfi Reykjavíkur segist í miklu áfalli eftir að hafa misst æskuheimili barna sinna í eldsvoða í kvöld. Húsið telst nú ónýtt en eigandinn þakkar fyrir að engin slys urðu á fólki. Íbúðin hafi verið í útleigu síðastliðið ár og staðið til að hún tæki aftur við lyklunum næsta laugardag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×