Maðurinn sem lést var búsettur í Vestmannaeyjum Árni Sæberg skrifar 1. júlí 2023 14:08 Töluvert viðbragð er við höfnina. Aðsend Karlmaður á áttræðisaldri lést í dag eftir að hafa fallið úr Ystakletti í Vestmannaeyjum.
Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, segir í samtali við Vísi að maðurinn hafi verið úrskurðaður látinn þegar honum var komið í land. Hann segir að maðurinn hafi verið á áttræðisaldri og vitað sé hver hann var. Hann segir að tildrög slyssins séu til rannsóknar. Þá segir hann að viðbragð hafi verið skjótt og björgunarskip fljótt á vettvang. Lík mannsins sé komið á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum og öllum aðgerðum lokið. Í tilkynningu frá lögeglunni segir að maðurinn hafi verið búsettur í Vestmannaeyjum og hann hafi verið með hópi manna við smölun í klettinum þegar óhappið varð. Félagar úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja hafi haldið þegar á vettvang og náðu manninum úr sjónum en hann reyndist vera látinn. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við Vísi að björgunarskipið Þór hafi verið kallað út klukkan 13:40 vegna slyssins. Ystiklettur er austasti klettur norðurklettanna í Vestmannaeyjum, en hann stendur norður af Víkinni þar sem innsiglingin í höfnina er. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vestmannaeyjar Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira