Fótbolti

Hraktist í burtu eftir erjur við stuðnings­menn liðsins

Sindri Sverrisson skrifar
Hedvig Lindahl hefur leikið nærri 200 A-landsleiki fyrir Svíþjóð.
Hedvig Lindahl hefur leikið nærri 200 A-landsleiki fyrir Svíþjóð. Getty/Joe Prior

Sænski markvörðurinn Hedvid Lindahl, sem hefur leikið nærri 200 landsleiki fyrir Svíþjóð, hefur rift samningi sínum við Djurgården í kjölfar deilna við stuðningsmenn liðsins.

Lindahl, sem er fertug, kom til Djurgården í fyrra en hluta af stuðningsmönnum liðsins hefur fundist hún of vinaleg í garð erkifjendanna í Hammarby.

Í grein BBC segir að Lindahl hafi til að mynda verið gagnrýnd fyrir tíst á Twitter þar sem hún hrósaði stuðningsmönnum Hammarby, eftir annan leik sinn fyrir Djurgården. Þá náðist mynd af henni að árita sænska landsliðsmarkmannstreyju fyrir stuðningsmann Hammarby.

Lindahl segist hafa orðið fyrir áreitni í nokkur skipti. Hún segist vilja að stuðningsmönnum líði öruggum á vellinum og þess vegna reyni hún að eiga góð samskipti einnig við stuðningsmenn andstæðinga síns liðs. Hún vilji ekki að bullumenningin sem loðað hafi við karlafótbolta færist einnig yfir í kvennafótbolta.

Grímuklæddir og köstuðu blysum

Nokkrir stuðningsmenn Djurgården mættu grímuklæddir og sýndu ógnandi hegðun á leik Djurgården við Linköping í júní, sem Djurgården tapaði 4-1, þar sem blysum var til að mynda kastað inn á völlinn. Í maí var greint frá fjórum líkamsárásum á lestarstöð eftir 1-0 tap Djurgården gegn Hammarby, og sagði Lindahl þá að slíkt ofbeldi ætti ekki að líðast.

En þær fótboltabullur sem baunað hafa á Lindahl á samfélagsmiðlum hafa ekki látið sér segjast og á einum leik mætti hópur með borða sem á stóð: „Við erum gengið sem ekki er óskað eftir í deildinni hennar Lindahl. Hedvig, þú munt aldrei þagga niður í okkur.“

„Ég vonaði að mér tækist að snúa hlutunum við gagnvart stuðningsmönnunum en við náðum aldrei þangað,“ sagði Lindahl við BBC.

Ferlinum mögulega lokið

Hún hefur á ferli sínum meðal annars unnið ensku úrvalsdeildina tvisvar með Chelsea, komist tvisvar í úrslitaleik Ólympíuleikanna með Svíþjóð, og unnið silfur á HM 2003. Hún hefur einnig spilað með liðum á borð við Wolfsburg og Atlético Madrid.

Lindahl segist nú vera að íhuga að leggja hanskana á hilluna en vonist þó til að geta lokið ferlinum með jákvæðari hætti. Hún hafi fengið frábæran stuðning frá liðsfélögum og starfsfólki Djurgården „í öllu þessu drama.“

„Ég vona að núna þegar ég er ekki lengur inni í myndinni þá muni fólk koma og styðja þau. Ef ég var ástæðan fyrir því að einhverjir komu ekki til að styðja þá geta þeir mætt núna,“ sagði Lindahl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×