Bíó og sjónvarp

Vill gera hið ó­mögu­lega þar til hann er átt­ræður

Máni Snær Þorláksson skrifar
Tom Cruise á frumsýningu sjöundu Mission: Impossible kvikmyndarinnar. Þær verða heldur betur fleiri ef hann fær einhverju um það ráðið.
Tom Cruise á frumsýningu sjöundu Mission: Impossible kvikmyndarinnar. Þær verða heldur betur fleiri ef hann fær einhverju um það ráðið. EPA/BIANCA DE MARCHI

Tom Cruise fagnaði á dögunum 61 árs afmæli. Aldurinn er þó engin ástæða til að hætta að gera kvikmyndir að hans mati og vonast hann til að geta haldið því áfram þar til hann verður áttatíu ára gamall.

Mission: Impossible - Dead Reckoning Part One verður frumsýnd um helgina en um er að ræða sjöundu myndina þar sem Tom Cruise tekst á við hið ómögulega í hlutverki Ethan Hunt. 

Í viðtali við Sydney Morning Herald sagði Cruise að hann vilji alls ekki leggja hlutverkið á hilluna. Þvert á móti vill hann halda áfram í að minnsta kosti tvo áratugi í viðbót. Cruise virðist fá innblástur frá Harrison Ford, en hann var áttatíu ára að leika í fimmtu Indiana Jones kvikmyndinni sem frumsýnd var á dögunum.

„Harrison Ford er goðsögn,“ segir Cruise sem bendir á að hann eigi tuttugu ár eftir ef hann miðar við Ford. „Ég vona að ég geti haldið áfram að gera Mission: Impossible myndir þar til ég er á hans aldri.“

„Oppenheimer fyrst, svo Barbie“

Í viðtalinu ræðir Cruise einnig um ást sína á kvikmyndahúsum. „Ég ólst upp við að sjá kvikmyndir á stóra skjánum,“ segir hann og bætir því við að kvikmyndirnar hans séu gerðar með það í huga að fólk fari í bíó að sjá þær.

Sjálfur fer Cruise ennþá í bíó og ætlar hann einmitt á tvær myndir í bíó á næstu dögum. Það eru kvikmyndirnar Barbie í leikstjórn Greta Gerwig og Oppenheimer í leikstjórn Christopher Nolan en myndirnar eru frumsýndar sama daginn.

„Ég vil sjá bæði Barbie og Oppenheimer. Ég ætla á þær báðar fyrstu helgina. Á föstudaginn ætla ég að sjá Oppenheimer fyrst, svo Barbie á laugardeginum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×