Erlent

Sak­sóknarar í leyniskjala­máli Trump fá hótanir

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump sætir ákæru fyrir misferli með leyniskjöl. Saksóknarar í málinu fá nú að kenna á heift stuðningsmanna hans.
Trump sætir ákæru fyrir misferli með leyniskjöl. Saksóknarar í málinu fá nú að kenna á heift stuðningsmanna hans. AP/Chris Carlson

Hægriöfgasinnaðir stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafa hótað saksóknurum sem sækja hann til saka fyrir meðferð sína á leyniskjölum. Þeir hafa meðal annars birt nöfn þeirra og persónuupplýsingar á netinu.

Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins ákærði Trump fyrir misferli með ríkisleyndarmál í síðasta mánuði. Málið snýst um hundruð leyniskjala sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti árið 2021 og neitaði að skila alríkisyfirvöldum þegar eftir því var leitað.

Washington Post segir að saksóknarnir í málinu sæti nú hótunum og ógnunum bæði á netinu og annars staðar. Stuðningsmenn Trump hafi meðal annars birt nöfn þeirra á netinu, hótað þeim og stundum birt upplýsingar um einkalíf þeirra.

Alríkislögreglan FBI segir hótanir í garð löggæsluaðila hættulegar. Hún meti og bregðist við slíkum hótunum eftir atvikum. 

Ræðst á saksóknara og dómara á samfélagsmiðlum

Dómsmálaráðuneytið er sagt hafa brugðist við með því að reyna að koma í veg að nöfn saksóknara og lögreglumanna sem vinna að máli Trump birtist opinberlega í opinberum skjölum og á nefndarfundum Bandaríkjaþings.

Það er þó sagt hægara sagt en gert það sem nöfn þeirra komi fram í dómskjölum sem eru opinber auk þess sem Trump hefur aðgang að upplýsingum um þá og vitni sem sakborningur í málinu. Trump hefur nýtt sér það til þess að ráðast á rannsakendur sína á samfélagsmiðlum, þar á meðal Jack Smith, sérstaka rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, og dómara sem fer með annað sakamál á hendur honum í New York.

Samfélagsmiðlanotkun Trump er sögð hafa orðið glannalegri að þessu leyti á undanförnum misserum. Karlmaður á fertugsaldir var handtekinn nærri heimili Baracks Obama, fyrrverandi forseta, í Washington-borg í síðustu viku, sama dag og Trump birti það sem hann sagði heimilisfang Obama á samfélagsmiðli. Byssur, hundruð skotfæra og sveðja fannst í sendiferðabíl mannsins sem sagðist leita að inngönguleið eða skotfæri á hús Obama.


Tengdar fréttir

Hand­tekinn við heimili Obama daginn sem Trump birti heimilis­fang

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn nærri heimili Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sama dag og Donald Trump birti það sem hann sagði heimilisfang Obama í síðasta mánuði. Skotvopn og hundruð skotfæra fundust í sendiferðabíl mannsins.

Hafnaði ráðleggingum og laug að ráðgjöfum um leyniskjölin

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafnaði ítrekaðri viðleitni lögmanna hans og ráðgjafa til að reyna að fá hann til að skila gögnum og leynilegum skjölum. Ítrekað var reynt að fá Trump til að gera samkomulag við Dómsmálaráðuneytið til að forðast ákærur, en forsetinn fyrrverandi vildi ekki heyra slíkt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×