Lífið

Klæddu sig upp fyrir loka­tón­leika Elton John

Máni Snær Þorláksson skrifar
Drífa og Snorri klæddu sig upp fyrir tónleikana í gærkvöldi.
Drífa og Snorri klæddu sig upp fyrir tónleikana í gærkvöldi. Aðsend

Lokatónleikarnir í kveðjutónleikaröð tónlistarmannsins Elton John fóru fram í Stokkhólmi í gær. Tónleikaröðin hófst árið 2018 og er ein sú söluhæsta í sögunni. Íslensk hjón sem mættu á tónleikana í gær segja að þeir hafi verið frábærir. 

Elton John fullyrðir að þetta hafi verið hans síðasta tónleikaröð. Alls hefur hann spilað fyrir framan yfir sex milljón manns á tónleikum undanfarin fimm ár. Þá segir Billboard að tónleikaröðin sé sú fyrsta í sögunni hafi selt miða fyrir níuhundruð milljónir dollara, sem jafngildir um hundrað og tuttugu milljörðum í íslenskum krónum.

„Þetta voru frábærir tónleikar, algjörlega geggjaðir,“ segir Snorri Örn Clausen í samtali við fréttastofu. Hann fékk tónleikana í fertugsafmælisgjöf frá konunni sinni, Drífu Jónasdóttur. „Ég hugsa að ég sé nú meiri aðdáandi en konan mín.“

Snorri beið á lestarstöðinni í fullum skrúða.Aðsend

Snorri og Drífa klæddu sig bæði upp fyrir tónleikana en segja að það hafi ekki allir verið að gera það. Það þýðir þó ekki að það voru ekki alvöru aðdáendur á svæðinu. „Við hittum mann þarna sem var að fara á sína 35. tónleika og hann sagði að þetta hefðu verið bestu tónleikar sem hann hafði farið á síðustu 25 ár,“ segir Snorri.

„Það var mikið af aðdáendum þarna sem voru greinilega búnir að fara á mjög marga tónleika. Hann taldi það upp að einhverjir voru búnir að fara á hundrað tónleika. Það var greinilegt að fólk var að mæta á síðustu tónleikana hans.“

Sumir eru meiri aðdáendur en aðrir. Snorri og Drífa hittu mann sem hefur farið á 35 tónleika með Elton John.Aðsend

Þó svo að Elton ætli sér ekki að fara af stað með tónleikaröð aftur þá sagði hann að muni kannski halda einhverja tónleika aftur. „Hann sagðist vera hættur að túra en að hann myndi kannski gera eitthvað meira. Þannig við sjáum til,“ segir Snorri.

„Ég hugsa að hann gæti alveg gert þetta lengur. Hann virtist allavega vera í fullu fjöri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×