Sport

Morgan Marie verður áfram á Hlíðarenda

Hjörvar Ólafsson skrifar
Morgan Marie Þorkelsdóttir er öllum hnútum kunnug á Hlíðarenda. 
Morgan Marie Þorkelsdóttir er öllum hnútum kunnug á Hlíðarenda.  Mynd/Valur

Morgan Marie Þorkelsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals í handbotla kvenna og verður þar með hið minnsta í herbúðum félagsins til ársins 2025.

Morgan Marie lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki Vals haustið 2012 en hún þurfti að taka sér hlé á handboltaiðkun vegna meiðsla árið 2019.  

Þessi fjölhæfi leikmaður dró svo fram handboltaskóna á nýjan leik árið 2021 og er hún þar af leiðinni á leiðinni inn í sitt tíunda tímabil í Valstreyjunni. 

Á tíma sínum á Hlíðarenda hefur Morgan Marie orðið bikarmeistari fimm sinnum, fjórum sinnum fagnað Íslandsmeistaratitliog þrívegis staðið uppi sem deildarmeistari. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×