Handbolti

Roland Eradze ráðinn til ÍBV

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roland Eradze boðinn velkominn til ÍBV
Roland Eradze boðinn velkominn til ÍBV ÍBV

Roland Eradze hefur ráðið sig til starfa sem aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaraliðs ÍBV.

Eradze hefur verið í viðræðum við ÍBV, eins og Vísir greindi frá, en nú hefur verið gengið frá öllum lausum endum og ÍBV tilkynnti ráðningu hans formlega í dag.

Roland mun ásamt því að aðstoða Magnús Stefánsson þjálfara mun Roland einnig sjá um markmannsþjálfun og yngri flokka þjálfun hjá félaginu.

Roland er gríðarlega reynslumikill, fyrrum landsliðsmarkmaður Íslands en hann spilaði handbolta á sínum tíma með Val, Stjörnunni og ÍBV.

Roland hefur verið þjálfari hjá Stjörnunni, FH og Fram en síðustu þrjú ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari úkraínska meistaraliðsins HC Motor sem spilaði meðal annars í Evrópudeildinni síðasta haust og Meistaradeild Evrópu árin þar á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×