Skoðun

Í átt að sterkara borgarasamfélagi

Vala Karen Viðarsdóttir skrifar

Þann 18. júlí næstkomandi mun Ísland kynna sína aðra landrýni um innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá Sameinuðu þjóðunum í New York.

Að þessu sinni tryggðu stjórnvöld aðkomu fleiri hagaðila í landrýni sinni. Þá var í fyrsta sinn víðtækt samráð við frjáls félagasamtök þar sem um 55 samtök framkvæmdu svokallað stöðumat borgarasamtaka (e. civil society assessment) fyrir hvert og eitt markmið og gáfu stjórnvöldum ráðleggingar.

Þó svo að framvinda Íslands í tengslum við aukna þátttöku borgarasamfélagsins í gegnum landrýnina sé mikilsvert, þá er enn hávært ákall um víðtækari og merkingarbærri þátttöku borgarasamfélagsins í allri stefnumótandi ákvarðanatöku stjórnvalda sem hefur áhrif á almenning.

Borgarasamfélagið á Íslandi er því miður ekki sterkt, borið saman við nágrannaríki okkar, en hefur þó alla burði til þess ef rétt er haldið á spilunum. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi leiddi stöðumatið í skýrslu stjórnvalda en fljótlega varð ljóst að mikill áhugi væri á slíkum samráðsvettvangi en einnig brýn þörf til þess að standa þétt saman, ræða málefni sem varða okkur öll þvert á geira og síðast en ekki síst, að veita stjórnvöldum raunverulegt aðhald.

Í nýútgefinni landrýniskýrslu stjórnvalda stangast mat borgarasamfélagsins umtalsvert á við mat stjórnvalda á stöðu innleiðingu heimsmarkmiðanna. Heilt yfir fengu íslensk stjórnvöld gula spjaldið og það rauða í fjórum markmiðum frá borgarasamfélaginu. Þegar skoðuð er skýrsla Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem nýlega var gefin út kemur í ljós að stöðumat borgarasamfélagsins á Íslandi í landrýninni er í takt við mat Sameinuðu þjóðanna. Að mati Sþ stendur Ísland sig illa í markmiði 2 um ekkert hungur, markmiði 6 um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, markmiði 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu, markmiði 13 um aðgerðir í loftlagsmálum og markmiði 15 um líf á landi. Í landrýninni fengu stjórnvöld rauða spjaldið í markmiðum 10, 12, 13 og 15 frá borgarasamfélaginu.

Raunin er einfaldlega sú að Ísland er hreinlega að dragast aftur úr í innleiðingu heimsmarkmiðanna. Þá eru önnur lönd að taka fram úr okkur en Ísland féll úr 22. sæti niður í það 29 milli ára. Að sama skapi féll landið niður í neðstu sætin yfir þau lönd sem hafa jákvæð smitáhrif á önnur lönd, og vermir þar sæti númer 164, á undan Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Singapúr sem er í síðasta sæti.

Borgarasamfélagið gegnir lykilhlutverki í því að knýja áfram sjálfbærni, að tala fyrir umbreytandi áhrifum og að virkja samfélög. Saman getum við mótað framtíð þar sem raunveruleg þátttaka borgara og inngilding verða normið og þar sem stjórnvöld bera sannarlega ábyrgð gagnvart fólkinu sem það á að þjóna. Nú er tími til þess að hrinda í framkvæmd alvöru þátttöku og samráði borgarasamfélagsins og hvetjum við stjórnvöld til þess að gegna afgerandi hlutverki við að takast á við brýn málefni, bæði hér heima og á alþjóðavelli svo að raunverulegar breytingar eigi sér stað til þess að tryggja fulla innleiðingu heimsmarkmiðanna.

Hægt verður að fylgjast með kynningu á landrýniskýrslu Íslands á Ráðherrafundi Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun þann 18. júlí í beinu streymi hér kl. 19:15.

Höfundur er framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×