Fótbolti

Valgeir og félagar á toppinn eftir dramatískan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valgeir Lunddal kom inn af varamannabekknum hjá Häcken í dramatískum sigri.
Valgeir Lunddal kom inn af varamannabekknum hjá Häcken í dramatískum sigri. Vísir/Hulda Margrét

Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken unnu dramatískan 4-2 sigur er liðið tók á móti Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Valgeir hóf leik á varamannabekk Häcken í dag, en kom inn á þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Þá höfðu heimamenn í Häcken 1-0 forystu og því átt enn nóg eftir að gerast.

Mikkel Rygaard tvöfaldaði forystu Häcken þegar um stundarfjórðungur lifði leiks áður en gestirnir jöfnuðu metin með tveimur mörkum á seinustu tíu mínútum venjulegs leiktíma.

Varamennirnir Amor Layouni og Ola Kamara, sem báðir höfðu komið inn af varamannabekknum á 62. mínútu, komu heimamönnum þó til bjargar, því Layouni skoraði tvö mörk í uppbótartímanum eftir stoðsendingu frá Kamara í bæði skiptin. 

Niðurstaðan varð því 4-2 sigur Häcken sem nú trónir á toppi sænsku deildarinnar með 35 stig eftir 16 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×