Fótbolti

Hóta að skera þrjá putta af Vlahovic ef hann kemur til PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vlahovicc

Stuðningsmenn Paris Saint-Germain virðast ekkert alltof spenntir fyrir því að fá serbneska framherjann Dusan Vlahovic frá Juventus og hafa hótað honum limlestingum.

Eftir brotthvarf Lionels Messi og óvissu um framtíð Kylians Mbappé vantar PSG framherja og Vlahovic er meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við frönsku meistarana.

Hörðustu stuðningsmenn PSG vilja þó ekki sjá Vlahovic í frönsku höfuðborginni. Þeir stilltu sér upp fyrir utan heimavöll PSG, Parc des Princes, með borða sem á stóð: „Ef þú kemur munum við skera þrjá fingur af þér.“

Ástæðan fyrir því að stuðningsmenn PSG vilja gera Vlahovic þremur puttum fátækari er merki sem hann gerði með fingrunum eftir leik með serbneska landsliðinu.

Vlahovic gekk í raðir Juventus frá Fiorentina fyrir háa fjárhæð fyrir síðasta tímabil. Nú bendir hins vegar margt til þess að hann yfirgefi herbúðir Gömlu konunnar. Hvert hann fer á eftir að koma í ljós en auk PSG hefur Serbinn verið orðaður við Chelsea og Tottenham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×