Fótbolti

Ís­­lendingar í aðal­­hlut­­verki þegar Norr­köping kynnti Ísak Andra til leiks með frá­bæru mynd­bandi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ísak Andri er orðinn leikmaður IFK Norrköping.
Ísak Andri er orðinn leikmaður IFK Norrköping. Vísir/Hulda Margrét

IFK Norrköping hefur staðfest Ísak Andra Sigurgeirsson sem nýjan leikmann félagsins. Í kynningarmyndbandi liðsins á Twitteru er Ísland og Íslendingar í aðalhlutverki.

Greint var frá því á dögunum að Ísak Andri væri á leið til IFK Norrköping og sænska félagið hefur nú staðfest komu hans. Fyrir hjá félaginu eru þeir Arnór Ingvi Traustason og Andri Lucas Guðjohnsen en fjölmargir Íslendingar hafa leikið með Norrköping í gegnum tíðina.

Það kemur því kannski lítið á óvart að Norrköping hafi nýtt sér Íslandstenginguna í myndbandinu sem félagið birti á samfélagsmiðlum þegar það kynnti Ísak Andra til leiks.

Í myndbandinu er Arnór Ingvi í stóru hlutverki þar sem hann fer yfir sögu Íslendinga hjá félaginu. Í myndbandinu sést Arnór Ingvi sjálfur skoraði markið sem tryggði liðinu sænska meistaratitilinn árið 2015, þar glittir í Arnór Sigurðsson og Stefán Þórðarson sem er í hálfgerðri guðatölu hjá stuðningsmönnum félagsins eftir að hafa leikið með því á sínum tíma.

Yfirskrift myndbandsins er „Hér í Norrköping verða Íslendingar að goðsögnum“ og hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

Samningur Ísaks Andra er út tímabilið 2026. Í viðtali við heimasíðu Norrköping segist Ísak Andri að hann sé mjög spenntur fyrir því að koma til Svíþjóðar og koma sér í gang með félaginu.

„Þetta er búið að vera mitt besta tímabil hingað til. Ég er búinn að skora fimm mörk og gefa níu stoðsendingar í 27 leikjum með Stjörnunni, og samtals 13 mörk og stoðsendingar á þessu tímabili.“

„Ég vissi ýmislegt um félagið og hef lesið eitthvað sömuleiðis. Ég þekki nokkra aðra Íslendinga sem hafa spilað fyrir liðið og allir segja það sama, að borgin og allt í kringum félagið sé frábært. Tilfinningin er góð að flytja hingað,“ bætir Ísak Andri við.

Hann vonast til að vera fljótur að aðlagast hlutunum í nýrri deild og nýju landi.

„Ég vona að ég geti komið hingað til Norrköping og orðið hluti af liðinu strax. Mig langar að gera það sama í Norrköping og ég hef gert á Íslandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×