Íslenski boltinn

Sjáðu vítið sem FH klúðraði á móti KR og sigur­mark nýju hetju KR-inga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luke Morgan Conrad Rae fagnar hér sigurmarki sínu í gær.
Luke Morgan Conrad Rae fagnar hér sigurmarki sínu í gær. Vísir/Diego

KR vann 1-0 sigur á FH í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem eina mark leiksins kom á 90. mínútu.

Englendingurinn Luke Morgan Conrad Rae opnaði markareikning sinn á hárréttum tíma en hann skoraði á lokamínútu leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamaður níu mínútum fyrir leikslok.

Þettar var fyrsta mark Luke fyrir KR í efstu deild í hans tíunda deildarleik með Vesturbæjarfélaginu.

Markið var líka það eina sem var skorað í Bestu deild karla í gær því Fylkir og HK gerðu markalaust jafntefli í hinum leik kvöldsins.

Það voru fleiri hetjur í KR-liðinu en Luke Morgan Conrad Rae því áður en markið kom þá varði norski markvörðurinn Simen Lillevik Kjellevold víti frá FH-ingnum Úlfi Ágústi Björnssyni.

Luke Morgan Conrad Rae er 22 ára Englendingur sem kom til KR frá Gróttu þar sem hann skoraði 7 mörk í 20 leikjum í Lengjudeildinni í yrra. Hann var þar áður í Vestra og Tindastól og hefur því spilað á Íslandi undanfarin fjögur sumur.

Þessi þrjú stig komu KR-liðinu upp í fjórða sæti deildarinnar og upp fyrir FH-inga.

Hér fyrir neðan má sjá bæði vítavörsluna og sigurmarkið.

Klippa: Markið og vítavarslan úr leik KR og FH



Fleiri fréttir

Sjá meira


×