Erlent

Hitinn að sliga heil­brigðis­kerfið og fólk kælt niður í lík­pokum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þeir sem geta ekki komið sér inn í loftkæld rými eru í yfir 32 stiga hita allan sólahringinn.
Þeir sem geta ekki komið sér inn í loftkæld rými eru í yfir 32 stiga hita allan sólahringinn. Getty/George Rose

Heilbrigðisstarfsmenn í Bandaríkjunum hafa gripið til þess ráðs að setja sjúklinga með sólsting, eða hitaslag, í líkpoka fulla af klaka til að kæla þá hratt og örugglega niður.

Gríðarleg hitabylgja gengur nú yfir Bandaríkin og BBC hefur eftir sjúkraflutningamanninum David Schilling, sem starfar í Las Vegas, að útköllum hafi fjölgað um allt að 40 prósent. Fjölgunina megi að mestu rekja til ferðamanna, sem séu óvanir hitanum.

Áður en hitabylgjan skall á hafði verið óvenju „kalt“ í Las Vegas í marga mánuði, þar sem hitinn var undir 38 stigum 260 daga í röð. Schilling segir hitabylgjuna hafa læðst aftan að fólki.

„Við sjáum fólk sem er ringlað, með hraðan hjartslátt; fólk er að falla í yfirlið, þetta er því ofviða,“ segir hann. Margir átti sig ekki á hinum löngu vegalengdum sem fólk þarf að ganga í Las Vegas og margir séu að ofþorna.

Að sögn veðurfræðingsins Trevor Boucher hækkar hitinn aðeins lítillega yfir nóttina og fari sums staðar ekki niður fyrir 32 stig allan sólahringinn. Þeir sem ekki hafi aðgang að loftkælingu séu fastir í þessum mikla hita allan daginn og allar nætur.

CNN hefur eftir læknum að hitinn sé að verða heilbrigðiskerfinu ofviða. Bráðalæknirinn Frank LoVecchio segir „yfirflæði“ sjúklinga á Valleywise Health Medical Center í Phoenix ekki hafa verið jafn mikið frá því í kórónuveirufaraldrinum.

Sums staðar hafa heilbrigðisstarfsmenn gripið til þess ráðs að kæla sjúklinga með sólsting, eða hitaslag, með því að koma þeim fyrir í líkpokum sem hafa verið fylltir af klaka.

Læknirinn Geoff Comp, sem er sagður hafa þróað meðferðina, segir líkpokana tilvalda til að kæla niður sjúklingana og að aðferðin sé allt að tvisvar sinnum fljótvirkari en aðrar aðferðir. Pokarnir eru einangrandi en einnig nógu opnir til að veita læknum greitt aðgengi að sjúklingnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×