Skoðun

Heima­gert ekki endi­lega betra

Hugrún Elvarsdóttir skrifar

Það er ekki launungarmál að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Einföldun regluverks og aukið gagnsæi við ráðstöfun opinberra fjármuna í þágu loftslagsmarkmiða eru mikilvægar vörður á leið okkar að loftslagsmarkmiðum Íslands.

Nærtækast væri að ráðast hratt og örugglega í einföldun á regluverki en því miður er það óskilvirkni hins opinbera sem veldur því að Ísland stendur í stað í 16. sæti í árlegri samkeppnishæfniúttekt IMD árið 2023 samkvæmt samantekt Viðskiptaráðs. Neikvæð þróun regluverks vegur þar þungt og kemur fyrst og fremst niður á fyrirtækjum, ekki síst litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Regluverkið í kringum loftslagsmálin er þar engin undantekning. Atvinnulífið hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld innleiði ekki EES-reglur með meira íþyngjandi hætti en nágrannalöndin og setji ekki heimagerð ákvæði í frumvörp án þess að greina hvaða afleiðingar þau geti haft. Samkvæmt greiningu Viðskiptaráðs kemur í ljós að íslensk fyrirtæki búa við mun meiri kostnað en fyrirtæki í öðrum Evrópulöndum vegna þeirra fjölmörgu reglugerða ESB sem hafa verið innleiddar eða stendur til að innleiða á sviði sjálfbærni hér á landi.

Hér má nefna tilskipun um birtingu ófjárhagslegra upplýsinga, sem var innleidd með víðtækara gildissviði hérlendis en í Evrópu. Heimagert íslenskt ákvæði olli því að átta sinnum fleiri íslensk fyrirtæki þurfa að fylgja reglunum en tilskipunin sjálf mælir fyrir um. Þessi heimagerða regla hefur kostað íslenskt atvinnulíf 9,8 milljarða króna frá árinu 2016, samkvæmt greiningu Viðskiptaráðs. Heimagerðar íslenskar reglur fela ekki einungis í sér mikinn kostnað og tímatap heldur geta þær líka skert athafnafrelsi fyrirtækja, dregið úr hagvexti og alþjóðlegri samkeppnishæfni og þannig stofnað fjölda starfa í hættu.

Auk neikvæðrar þróunar regluverks hafa opinber fjármál fallið niður um 24 sæti á fjórum árum. Samhliða því hefur atvinnulífið misst trúna á að opinbert fjármagn sé notað á skilvirkan hátt. Í því samhengi er mikilvægt að benda á að tryggja þarf aukið gagnsæi í loftslagshagstjórn landsins til að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum skili tilætluðum árangri. Enn er til að mynda óbirt bókhald yfir ,,grænar tekjur“ á móti ,,grænum útgjöldum“ hins opinbera. Ógagnsæi ríkir því um hvert það fjármagn fer, sem innheimt er í nafni grænna skatta og tilgangur og markmið skattheimtunnar því óskýr.

Leiðin að bættum árangri Íslands í loftslagsmálum felst í forgangsröðun verkefna. Það er mikilvægt að skilvirkni hins opinbera, heimagerðar reglur og ráðstöfun opinberra fjármuna séu ekki dragbítur á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Höfundur er verkefnastjóri á efnahags- og samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×