Samstarf

Eldgosið hafi komið á besta tíma

Björn Steinbekk fékk að prófa nýja drónann á glænýju eldgosi.
Björn Steinbekk fékk að prófa nýja drónann á glænýju eldgosi. YouTube

Síðan eldgosahrina hófst á Reykjanesskaga fyrir tveimur árum hefur Björn Steinbekk verið fastagestur á svæðinu með dróna á lofti. Segja má að gosið sem hófst í júlí hafi ekki getað komið á betri tíma fyrir Björn.

„Ég er búinn að vera að nota drónann frá fyrsta degi við gosið, prufa svona hina og þessa fítusa á honum, skoða hvað er hægt að gera með hann,“ segir Björn í samtali við fréttastofu en um er að ræða nýjan dróna frá framleiðandanum DJI sem kallast Air 3. 

Björn segir að niðurstaðan hafi verið sú að hann ákvað að gera stuttmynd um eldgos og áhrifamátt þeirra.

„Hvernig eldgos hefur áhrif á allt fólkið sem kemst í tæri við það. Svona mína sýn á þetta undur, það er grunnurinn í þessu,“ útskýrir hann.

Hann merkir aukinn áhuga fólks á drónum og möguleikanum sem þeir veita.

„Ég er að fá endalaust af skilaboðum og fyrirspurnum frá alls konar fólki sem er að kaupa sér dróna. Fólk sem hefur gaman af því að mynda í gönguferðum uppi á hálendi, fólk sem er á kajökum eða hjólum. Þetta er að dreifast alveg ótrúlega.“

Björn rekur þetta að hluta til þess hve áberandi drónar hafa verið á síðustu árum.

„Þetta hefur alltaf orðið meira og meira áberandi og hópurinn stækkar sem sér tækifæri í þessu. Síðan verða þessi tæki alltaf meðfærilegri og þægilegri að læra á. Það er alls konar fólk, bæði ungt og eldra sem er að kaupa sér dróna í dag.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×