Sport

Ljósu lokkarnir snúa aftur hjá Katrínu Tönju fyrir heims­leikana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir með Anníe Mist Þórisdóttir. Þær keppa báðar á heimsleikunum í ár.
Katrín Tanja Davíðsdóttir með Anníe Mist Þórisdóttir. Þær keppa báðar á heimsleikunum í ár. Instagram/@katrintanja

Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir er á lokasprettinum að undirbúa sig fyrir heimsleikana í CrossFit og hún ákvað að gera eina breytingu á sér rétt fyrir keppni.

@katrintanja

Það vakti athygli þegar Katrín Tanja skipti um háralit fyrr á árinu en það fer þó ekki svo að okkar kona mæti í þeim litum til leiks í Madison.

Katrín Tanja sýndi frá því í gær á samfélagsmiðlum að hún hefur skipt aftur um lit. Ljósu lokkarnir snúa nefnilega aftur hjá Katrínu fyrir heimsleikana.

Þetta verða tíundu heimsleikar hennar á ferlinum en þeir fyrstu eftir að hún missti af heimsleikunum 2022.

Síðast þegar Katrín Tanja missti af heimsleikum, árið 2014, þá mætti hún til leiks árið eftir og varð heimsmeistari.

Katrín endaði í þriðja sæti á undanúrslitamótinu sínu en hún keppir undir merkjum Bandaríkjanna að þessu sinni. Katrín tryggði sig inn á leikana í gegnum undanúrslitamót Vesturstrandar Bandaríkjanna.

@katrintanja)

Heimsleikarnir í ár standa yfir frá 3. til 6. ágúst og eru því yfir Verslunarmannahelgina. Heimsleikarnir fara fram í Madison í Wisconsin fylki.

Heimsmeistarinn mun vinna sér inn 315 þúsund Bandaríkjadali eða rúma 41 milljón íslenskra króna.

Heimsmeistari síðustu sex ára, Tia-Clair Toomey, missir af leikunum af því að hún er nýbúin að eignast sitt fyrsta barn. Katrín Tanja er síðasta konan til að vinna heimsleikana síðan að yfirburðir Toomey hófust árið 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×