Sport

Sjáðu mörkin: Hákon Arnar skoraði tvö og lagði upp eitt

Andri Már Eggertsson skrifar
Hákon Arnar hefur byrjað afar vel með Lille 
Hákon Arnar hefur byrjað afar vel með Lille  Lille

Hákon Arnar Haraldsson heldur áfram að blómstra á undirbúningstímabilinu með sínum nýju liðsfélögum í Lille. Hákon skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu gegn La Havre í 3-2 sigri. 

Skagamaðurinn heldur áfram að skora fyrir Lille. Hákon skoraði tvö mörk með tæplega níu mínútna millibili. 

Hákon Arnar gekk til liðs við Lille fyrr í mánuðinum og gerði þrennu í sínum fyrsta æfingaleik gegn belgíska liðinu Cercle Brugge. Hákon hefur því komið að sex mörkum í fyrstu tveimur æfingaleikjunum með félaginu.

Skagamaðurinn átti stoðsendinguna á Jonathan David sem braut ísinn og kom Lille yfir á 19.  mínútu.

 

Hákon skoraði annað mark Lille eftir mistök í varnarleik Le Havre. Leikmenn Lille pressuðu öftustu línu Havre sem gerði það að verkum að þeir unnu boltann og Hákon kláraði færið með marki.

Hákon var síðan aftur á ferðinni tæplega níu mínútum seinna þegar hann fékk sendingu inn í teig og þrumaði boltanum afar smekklega í þaknetið. 

Fyrsti leikur Lille í frönsku úrvaldseildinni er gegn Nice á útivelli þann 12. ágúst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×