Fótbolti

Sjáðu mörkin úr fræknum sigri KA á Dundalk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni Aðalsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson skoruðu mörk KA gegn Dundalk.
Bjarni Aðalsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson skoruðu mörk KA gegn Dundalk. vísir/hulda margrét

KA er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum í gær.

KA hefur unnið alla þrjá leiki sína í Sambandsdeildinni í sumar og er komið með annan fótinn í 3. umferð forkeppninnar eftir sigurinn á Framvellinum í gær. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik.

KA náði forystunni á 28. mínútu þegar Bjarni Aðalsteinsson skoraði eftir frábæra sókn og sendingu Hallgríms Mar Steingrímssonar. Fjórum mínútum síðar jafnaði Daniel Kelly fyrir Dundalk.

Næstu mínútur tilheyrði sviðið hins vegar Sveini Margeiri Haukssyni. Hann kom KA-mönnum aftur yfir eftir stungusendingu Daníels Hafsteinssonar á 37. mínútu og á lokamínútu fyrri hálfleiks bætti hann öðru marki við.

Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA, átti þá sendingu út í vítateiginn, Hallgrímur Mar lét boltann fara milli fóta sér og hann endaði hjá Sveini sem skoraði öðru sinni. 

Fleiri urðu mörkin ekki og KA fagnaði góðum sigri. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Ef KA nær í hagstæð úrslit á Írlandi á fimmtudaginn eftir viku mætir liðið væntanlega Club Brugge í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Club Brugge er 3-0 yfir eftir fyrri leikinn gegn AGF.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×