Veður

Leifar af felli­byl or­saka ó­­vissu með veðrið um verslunar­manna­helgina

Máni Snær Þorláksson skrifar
Miðað við spána núna verður úrkoma í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Búist er þó við hægviðri.
Miðað við spána núna verður úrkoma í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Búist er þó við hægviðri. Sigurjón Ólason

Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að óvissa sé með það hvernig veðrið verður á Íslandi um verslunarmannahelgina. Leifar af fellibyl orsaka óvissuna en að sögn veðurfræðings koma leifarnar þó ekki til Íslands.  

„Þetta er ekki að skýrast eins og við höfðum óskað okkur. Ástæðan er sú að það virðast vera leifar af fellibyl sem er að ganga til austurs yfir Atlantshafið á fimmtudag og föstudag,“ segir Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur í samtali við fréttastofu.

Elín segir þó að leifarnar af fellibylnum eigi ekki eftir að koma til Íslands, þær haldi sér í Bretlandi. „En við sitjum svolítið í óvissusúpunni þarna í kjölfarið.“

Óvissan felist í því hvort úrkomusvæðið komi hérna yfir og hvort að hitabeltislægð verði að lægð í Norður-Atlantshafi. „Það breytir svolítið miklu hvort hún kemur eða fer. Þannig það er nú eiginlega það sem við erum að horfa á núna.“

Þá segir Elín að veðurspárnar hafi breyst mikið frá því í gær. Því sé ekki eins auðvelt að spá fyrir um það hvernig veðrið verður um verslunarmannahelgina. Eins og staðan er núna sé útlit fyrir einhverri rigningu á vestanverðu landinu en létta eigi svolítið til á norður- og austurlandi. Búist sé við átta til fimmtán stiga hita.

„Þetta er ekkert hvassviðri eða slíkt.“

Búast má við að mikill fjöldi fólks komi saman á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um næstu helgi. Samkvæmt spánni lenda Vestmannaeyjar undir úrkomusvæðinu en þó er spáð hægviðri. 

„Við höfum oft verið að sjá miklu verra veður í Eyjum heldur en í þessari spá. Þannig það er bara regngallinn eins og alltaf, þú ferð náttúrulega ekki til Vestmannaeyja án þess að taka regngalla.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×