Fótbolti

Mark Arnórs Ingva dugði skammt

Hjörvar Ólafsson skrifar
Mark Arnórs Ingva Traustasonar skilaði ekki stigum. 
Mark Arnórs Ingva Traustasonar skilaði ekki stigum.  Vísir/Getty

Arnór Ingvi Traustason skoraði mark Norrköping þegar liðið beið lægri hlut, 2-1, gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í dag. 

Eftir þessi úrslit hafa liðin hvort um sig 25 stig í fimmta til áttunda sæti deildarinnar en Kalmar og Halmstad hafa einnig 25 stig. 

Andri Lucas Guðjohnsen spilaði allan tímann í fremstu víglínu hjá Norrköping. Ari Freyr Skúlason vermdi hins vegar varamannabekkinn allan tímann í leiknum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×