Fótbolti

Guðmundur Baldvin til Mjällby

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Baldvin Nökkvason er kominn til Svíþjóðar.
Guðmundur Baldvin Nökkvason er kominn til Svíþjóðar. vísir/diego

Fótboltamaðurinn Guðmundur Baldvin Nökkvason er genginn í raðir sænska félagsins Mjällby frá Stjörnunni. Mjällby staðfesti félagaskiptin í morgun.

Guðmundur er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðan 2021. Alls hefur hann leikið 34 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild og skorað sex mörk.

Miðjumaðurinn lék með íslenska U-19 ára landsliðinu á EM fyrr í þessum mánuði. Guðmundur hefur leikið átta leiki fyrir U-19 ára landsliðið og skorað eitt mark.

Guðmundur er annar leikmaður Stjörnunnar sem fer í félag í sænsku úrvalsdeildinni í sumar. Áður var Ísak Andri Sigurgeirsson genginn í raðir Norrköping.

Mjällby er í 9. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 22 stig eftir sautján leiki. Næsti leikur liðsins er gegn botnliði Varberg eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×