Innlent

Sofa með barnið í tjaldi á pallinum

Eiður Þór Árnason skrifar
Húsið er í Vallarhverfinu í Hafnarfirði.
Húsið er í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

Þriggja manna fjölskylda hefur búið úti í tjaldi við húsið sitt á Völlunum í Hafnarfirði í um þrjár vikur. Íbúð þeirra er sögð óíbúðarhæf vegna myglu, raka, leka og fleiri galla en hjónin keyptu húsið árið 2008. Þau segjast hafa verið blekkt og afhent fokhelt hús sem þau hafi talið vera fullbúið.

Mbl.is greinir frá þessu en mikil lekavandamál uppgötvuðust árið 2011. Sæmundur Jóhannsson telur sig og Ester Erlingsdóttur hafa tapað á bilinu 50 til 55 milljónum króna vegna galla á fasteigninni. Þau gisti nú í tjaldi ásamt níu ára syni þeirra.

Hjónin höfðuðu mál gegn seljendum hússins og byggingastjóra þess sem voru dæmd árið 2013 til að greiða 510.645 krónur vegna rakasperru sem var vitlaust sett upp.

Niðurstaða héraðsdóms var þrátt fyrir það á þá leið að kaupendum hafi átt að liggja ljóst fyrir að húsið væri einungis fokhelt þegar gengið var frá sölunni og ekki hlotið lokaúttekt. 

Ekki séð neitt óeðlilegt

Sæmundur segir í samtali við mbl.is að seljendur hafi áður átt heima í húsinu og ekkert hafi gefið til kynna að húsið væri ekki fulltilbúið þegar hjónin skoðuðu eignina fyrir kaupin. Parket hafi verið á gólfi, ísskápur fylgt með og fjölskyldan flutt inn. 

Hann og Ester hafi aldrei ætlað að kaupa fokhelt hús og þau ekki komist að sannleikanum fyrr en árið 2012. Hafi þau vitað að húsið væri einungis fokhelt hafi þau beðið um útlistun á því hvað ætti eftir að taka út og gera.

Ekki eru öll kurl komin til grafar í málinu en í frétt mbl.is segir Sæmundur að fram hafi komið í vitnisburði fasteignasalans fyrir héraðsdómi að hann hafi talið sig vera að selja fjölskyldunni fullbúið hús. Á sama tíma segi eigandinn það ekki fara milli mála að einungis hafi verið um fokhelt hús að ræða.

Fréttin hefur verið uppfærð og vísar nú til nýrrar fréttar Vísis af málinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×