Samstarf

Nýr Land Cru­iser frum­sýndur

Toyota á Íslandi
Í nótt var ný kynslóð hins sögufræga Land Cruiser frumsýnd í Japan. Um er að ræða Land Cruiser 250 sem mun leysa Land Cruiser 150 af hólmi. Bíllinn er væntanlegur til Íslands um mitt næsta ár.
Í nótt var ný kynslóð hins sögufræga Land Cruiser frumsýnd í Japan. Um er að ræða Land Cruiser 250 sem mun leysa Land Cruiser 150 af hólmi. Bíllinn er væntanlegur til Íslands um mitt næsta ár.

Ný kynslóð hins sögufræga Land Cruiser, Land Cruiser 250, var frumsýnd í Japan í nótt og mun á næsta ári leysa Land Cruiser 150 af hólmi. Bíllinn er væntanlegur til landsins um mitt ár 2024.

Nýtt útlit Land Cruiser 250 er með greinilegri tilvísun í hefðina og 72 ára sögu þessa bíls sem hófst 1. ágúst 1951 þegar forverinn, Toyota BJ, kom fram á sjónarsviðið. 

Með Land Cruiser 250 mun Toyota viðhalda glæsilegri sögu Land Cruiser sem afburða torfærubíls sem þekktur er fyrir styrk og áreiðanleika. Auk þess býður Land Cruiser 250 upp á öll þau þægindi sem sjálfsögð eru í daglegum akstri.

Land Cruiser 250 er með 2.8l dísilvél, 204 hestöfl, nýrri 8 þrepa skiptingu og nýju rafknúnu aflstýri. Dráttargetan hefur verið aukin í 3.500 kg. og jafnvægisstöng bílsins er nú hægt að stjórna frá mælaborði. 48V Mild Hybrid útgáfa er væntanleg 2025.

Áætlað er að forsala hefjist í október og þá verður sérstök útgáfa, „First Edition“ í boði. Þessi útgáfa verður fáanleg með sérstökum litum og framljósum og öðrum útlitseinkennum sem ekki verða í boði með öðrum útfærslum bílsins. Aðeins verða 3.000 eintök framleidd af þessari útgáfu.

Nánari upplýsingar má finna hér.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×