Viðskipti innlent

Eig­endur Öskju kaupa Dekkja­höllina

Eiður Þór Árnason skrifar
Elín Dögg Gunnars Väljaots, Jón Trausti Ólafsson og Kristdór Gunnarsson.
Elín Dögg Gunnars Väljaots, Jón Trausti Ólafsson og Kristdór Gunnarsson. aðsend

Eignarhaldsfélagið Vekra hefur gengið frá samningi um kaup á öllu hlutafé í Dekkjahöllinni. Vekra á meðal annars bílaumboðið Öskju, þjónustuverkstæðið Sleggjuna og Lotus bílaleigu. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Dekkjahöllin er rúmlega 40 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar á Akureyri auk starfstöðva á Egilsstöðum og í Skútuvogi og Skeifunni í Reykjavík. Fram kemur í tilkynningu að um 30 til 40 manns starfi hjá fyrirtækinu að jafnaði sem flytur inn hjólbarða frá Yokohama, Falken, Sonar og Triangle.

Bílaumboðið Askja er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia, Honda og Smart hér á landi en starfsmenn þess og systurfélaga undir hatti Vekru voru ríflega 200 talsins í fyrra. Þá er ársvelta Vekru sögð nema um 25 milljörðum króna árið 2022.

Stofnað í bílskúr föður þeirra

„Það eru stór tímamót hjá okkur í fjölskyldunni að selja rekstur Dekkjahallarinnar sem pabbi okkar, Gunnar Kristdórsson, stofnaði í bílskúrnum heima hjá okkur árið 1982. Það er þó mjög ánægjulegt að horfa til baka og sjá hve öflugt fyrirtæki honum og fjölskyldu hans hefur tekist að skapa. 

Nú er þó komið að tímamótum og við sjáum félagið verða samstarfsaðili öflugra fyrirtækja og við erum viss um að Dekkjahöllin verður í góðum höndum til framtíðar hjá Vekru sem hefur byggt upp afar farsæl fyrirtæki á undanförnum árum og þá horfum við sérstaklega til Öskju sem er þekkt fyrir góða þjónustu,“ segir Elín Dögg Gunnars Väljaots, fjármálastjóri Dekkjahallarinnar, í tilkynningu.

Hún og Kristdór bróðir hennar muni áfram starfa með nýjum eigendum Dekkjahallarinnar. Elín verði á Akureyri og Kristdór áfram stýra starfseminni á Egilsstöðum.

Vægi hjólbarðaþjónustu að aukast 

„Hlutverk okkar í Vekru er að standa vel að baki okkar rekstrarfélögum og ná fram samlegð í rekstri þeirra og um leið að byggja upp góða þjónustu við viðskiptavini með öflugum vörumerkjum. Dekkjahöllin fellur vel að okkar framtíðarsýn,“ segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Vekru og framkvæmdastjóri Öskju.

Hjólbarðaþjónusta sé órjúfanlegur hluti af bílaviðskiptum og þjónustu og svo verði enn frekar þegar rafbílar verða ráðandi. Hann bætir við að stjórnendur Vekra horfi björtum augum til framtíðar og Dekkjahöllin verði áfram með höfuðstöðvar á Akureyri þar sem félagið hafi sína stærstu starfsstöð.

„Stjórnendur þess, sem eru alin upp í Dekkjahöllinni, munu starfa með okkur áfram og við vonumst til að geta lagt þeim lið í að gera gott fyrirtæki enn betra,“ segir Jón í tilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×