Lífið

Tók út tíu klukkustunda refsingu í sundlauginni á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eyþór Atli Olsen Finnsson, Eyrbekkingur, sem eyddi deginum i sundlauginni á Selfossi í alls 10 klukkutíma.
Eyþór Atli Olsen Finnsson, Eyrbekkingur, sem eyddi deginum i sundlauginni á Selfossi í alls 10 klukkutíma. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Eyrbekkingur fékk heldur betur að kynnast sundlauginni á Selfossi í dag því hann þurfti að vera þar í 10 klukkutíma, sem refsing í vinsælum fótboltaleik. Eyrbekkingurinn naut þó lífsins með sína rúsínuputta en hann skiptist á að fara í rennibrautina, í heitu pottana og synda í lauginni.

“Ég er sem sagt búin að vera að taka út refsingu. Við erum sem sagt í „Fantasy” deild, sem er svona fótboltaleikur þar sem þú velur leikmenn, sem skora stig eftir því sem þeir gera á vellinum. Við erum 12 saman vinir, sem höfum verið í þessu síðustu þrjú ár og ég endaði í síðasta sæti á þessu tímabili og fæ þar af leiðandi tíu tíma sundrefsingu, sem er búin að taka sinn toll í dag,” segir Eyþór Atli Olsen Finnsson.

En hvernig hefur dagurinn verið?

„Þetta er búið að vera erfitt, mikil sól og lítið borðað, mikil einvera, já bara erfitt. Einn félagi minn úr hópnum kom reyndar með langloku fyrir mig og kók og svo sundlaugarverðirnir, þeir eru búnir að sinna mér alveg eins og kóngi, gáfu mér banana, kókómjólk og kaffi.”

Eyþór Atli segist ekki stunda sundlaugar mikið en í dag hafi hann safnað í reynslubankann hvað varðar að vera mjög, mjög lengi í sundi í einu.

En hvað heldur hann að fólki haldi um refsingu dagsins?

„Hálfasnalegt bara, nei, það er alltaf refsing á hverju ári fyrir síðasta sæti. Í fyrra voru það 12 tímar á Olís á Arnbergi hér á Selfossi. Núna er það sund og á næsta ári verður það eitthvað annað skemmtilegt.”

Eyþór Atli fór í nokkrar ferðir í rennibrautina til að drepa tímann.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Einn og einn vinur heimsótti Eyþór í laugina.

„Hann elskar athyglina eins og þú sérð þegar hann fór í rennibrautina fyrir myndavélina,” segir Árni Evert Leósson hlægjandi og vinur Eyþórs Atla.

Árni Evert Leósson er stoltur af afreki Eyþórs Atla í sundlauginni í dag.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Um Sundhöll Selfoss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×