Sport

Katrín Tanja hrokkin í gang en Annie Mist að gefa eftir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Katrín Tanja klífur hratt upp listann í dag.
Katrín Tanja klífur hratt upp listann í dag. INSTAGRAM/@KATRINTANJA

Seinni helmingurinn á heimsleikunum í CrossFit hófst nú í dag og gengi okkar fólks var misjafnt í fyrstu grein dagsins.

Annie Mist Þórisdóttir er að missa dampinn eftir góða byrjun. Hún varð aðeins í 25. sæti í fyrstu greininni í dag og datt við það niður í tólfta sæti úr því sjöunda.

Katrín Tanja Davíðsdóttir var aftur á móti í banastuði og varð önnur í greininni. Hún var í 15. sæti en stökk upp í það tíunda með þessari frábæru byrjun á deginum.

Björgvin Karl Guðmundsson varð tólfti í karlaflokki og féll við það úr sjötta sæti niður í það sjöunda.

Keppnin heldur áfram á eftir og er bein útsending á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×