Sport

Björgvin og Katrín á topp 10 fyrir síðustu greinina

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir.
Katrín Tanja Davíðsdóttir. Mynd/Instagram/katrintanja

Þrír Íslendingar taka þátt á Heimsleikunum í Crossfit um helgina.

Annarri grein dagsins er lokið og er það jafnframt næstsíðasta grein mótsins sem lýkur í kvöld.

Björgvin Karl Guðmundsson varð fjórði í greininni sem nefnist Parallel-Bar Pull en stendur engu að síður í stað í heildarstigakeppninni þar sem hann er áfram í sjöunda sæti.

Keppt var í sömu grein kvennamegin þar sem Katrín Tanja Davíðsdóttir hafnaði í sjöunda sæti og lyfti sér þar með upp í 9.sæti í heildarkeppninni á meðan Annie Mist Þórisdóttir varð fjórtánda og er í 12.sæti heildarkeppninnar.

Hægt er að fylgjast með lokagrein mótsins í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×