Innlent

Hvalrekaskattur á bankana kemur til greina

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Ólafur Björn Sverrisson skrifa
Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra. vísir/arnar

Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir koma til greina að leggja svokallaðan hvalrekaskatt á bankana vegna ofurhagnaðar sem má rekja til hærri vaxta. Það liggi þó ekkert fyrir um það innan ríkisstjórnar.

Ítölsk stjórnvöld ákváðu í dag að leggja svokallaðan hvalrekaskatt á hagnað banka á þessu ári en skattheimtan mun eingöngu ná til þess hluta hagnaðarins sem er tilkominn vegna vaxtatekna. Verða skatttekjurnar nýttar til að koma til móts við fjölskyldur í landinu sem hafa farið illa út úr ítrekuðum vaxtahækkunum. Hlutabréf í bönkum landsins lækkuðu í dag.

Slíkur hvalrekaskattur hefur einnig komið til umræðu hér á landi vegna mikils hagnaðar íslensku bankana. Á fyrri helmingi ársins hagnaðist Íslandsbanki um 12,4 milljarða króna, Arion banki um 13,4 milljarða og Landsbankinn 14,5 milljarða. Háar tekjur bankanna skýrast einkum af hærri vöxtum.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir það mögulegt að umræddur skattur verði lagður á bankana, þó að engin niðurstaða liggi fyrir um það í ríkisstjórn að svo stöddu. Hún var til viðtals í kvöldfréttum Stöðvar 2:

Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjulegar aðgerðir

„Ég hef nefnt þetta sem einn af þeim möguleikum sem eru í stöðunni. Við erum að fást við mikla verðbólgu og vextir hafa hækkað gríðarlega og vaxtakostnaður samhliða því. Það sem Ítalir eru að gera núna er að koma til móts við þessa stöðu, hagnaður bankanna hefur aukist um 64 prósent milli ára,“ segir Lilja.

„Ég tel að þetta sé eitt af því sem við veðrum að huga að, verði þessi verðbólga áfram og ef við sjáum fram á þennan mikla vaxtamun sem hefur aukist hér á landi. Það er svo mikilvægt að við séum með mörg tæki til að kljást við þessa verðbólgu. Þetta er eitt verkfæri sem við höfum til að koma til móts við heimilin og fyrirtæki í landinu.“

Lilja segir brýnasta verkefnið í hagstjórn landsins að ná verðbólgunni niður á sanngjarnan og eðlilegan hátt.

„Nú sjáum við ákveðin lönd í Evrópu grípa til þessa ráðs. Ég minni á að það var breski íhaldsflokkurinn sem setti hvalrekaskatt fyrst á í Evrópu árið 1981.“

Lilja segir þó enga niðurstöðu um hvalrekaskattinn innan ríkisstjórnar enn.

„Þegar við erum í óvenjulegum aðstæðum þarf stundum að fara í óvenjulegar aðgerðir.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×