Fótbolti

Birkir snýr aftur í ítalska boltann

Sindri Sverrisson skrifar
Birkir Bjarnason á flugi í leik með Íslandi gegn Ísrael. Hann flýgur til Ítalíu í dag.
Birkir Bjarnason á flugi í leik með Íslandi gegn Ísrael. Hann flýgur til Ítalíu í dag. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Birkir Bjarnason ferðast til Ítalíu í dag og mun samkvæmt heimildum Vísis skrifa formlega undir samning við sitt gamla knattspyrnufélag Brescia í kvöld.

Birkir, sem er leikjahæsti landsliðskarl Íslands frá upphafi, hefur leikið með sínu gamla liði Viking í Noregi undanfarna mánuði en ljóst var frá upphafi að tími hans þar yrði ekki mjög langur.

Brescia féll niður í C-deild eftir umspil síðasta vor en útlit er fyrir að liðið spili engu að síður áfram í B-deildinni. Það er vegna ákvörðunar um að dæma Reggina úr deildinni en félagið hefur glímt við mikla fjárhagserfiðleika. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar í því máli, þó að skammt sé í að nýtt tímabil hefjist.

Í þriðja sinn til Ítalíu

Birkir hefur leikið á Ítalíu drjúgan hluta síns ferils. Þar lék hann fyrst með Pescara árið 2012 en einnig með Sampdoria, áður en hann yfirgaf Ítalíu til að ganga í raðir Basel í Sviss árið 2015. Hann sneri svo aftur til Ítalíu og gekk í raðir Brescia árið 2020, eftir að hafa verið hjá Aston Villa og svo um skamma hríð hjá Al-Arabi í Katar.

Birkir, sem er 35 ára gamall, lék með Adana Demirspor í Tyrklandi í tvö ár en skipti yfir til Viking í vor í kjölfarið á jarðskjálftanum mannskæða í febrúar, skömmu áður en samningur hans við tyrkneska félagið átti að renna út.

Í grein Aftenbladet segir að þegar Birkir kom í mars hafi planið aðeins verið að hann gæti spilað sig í form með Viking, og að hann hafi varla verið með nein laun hjá félaginu.

Birkir hafi verið opinn fyrir því að vera áfram hjá Viking, félaginu sem hann hóf meistaraflokksferilinn með á sínum tíma, en á sama tíma verið skýr varðandi það að mögulega færi hann frá félaginu í sumar, eins og nú virðist ætla að verða raunin.

Birkir, sem var í síðasta landsliðshópi Íslands í júní en spilaði þó ekki, lék alls ellefu deildarleiki fyrir Viking í sumar og skoraði tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×