Fótbolti

Franskur lands­liðs­maður á­kærður fyrir nauðgun

Sindri Sverrisson skrifar
Wissam Ben Yedder hefur verið ákærður fyrir nauðgun.
Wissam Ben Yedder hefur verið ákærður fyrir nauðgun. Getty/Jacques Feeney

Knattspyrnumaðurinn Wissam Ben Yedder, sem á að baki 19 landsleiki fyrir Frakkland, hefur verið ákærður fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisofbeldi. Þetta staðfestir saksóknari í Nice við fjölmiðla.

Ben Yedder er 32 ára gamall og leikur með Monaco í frönsku 1. deildinni, þar sem liðið mætir Clermont í fyrstu umferð á sunnudaginn.

Samkvæmt staðarmiðlum er hann sakaður um að hafa ásamt bróður sínum brotið á tveimur konum, 19 og 20 ára, þann 10. júlí síðastliðinn, í Beausoleil í Frakklandi.

Þar til að réttað hefur verið yfir Ben Yedder sætir hann eftirliti og þarf þannig að uppfylla ákveðnar skyldur gagnvart dómstólum.

Ben Yedder lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Frakka í mars 2018 og var á lista varamanna en komst þó ekki í HM-hópinn sem varð heimsmeistari sama ár, en spilaði síðast landsleik gegn Króatíu í Þjóðadeildinni í fyrrasumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×