Erlent

Al-Qa­eda lýsir Dan­mörku og Sví­þjóð stríð á hendur

Kjartan Kjartansson skrifar
Mótmælendur í Teheran í Íran brenna sænska fánann. Fjöldi múslimaríkja hefur verið ósáttur við að sænsk stjórnvöld banni ekki samkomur þar sem kveikt er í Kóraninum.
Mótmælendur í Teheran í Íran brenna sænska fánann. Fjöldi múslimaríkja hefur verið ósáttur við að sænsk stjórnvöld banni ekki samkomur þar sem kveikt er í Kóraninum. Vísir/EPA

Íslömsku hryðjuverkasamtökin al-Qaeda kalla eftir árásum á Danmörk og Svíþjóð vegna nýlegra Kóranbrenna í löndunum tveimur. Fyrrverandi leyniþjónustumaður segir að taka verði hótanir samtakanna grafalvarlega.

Hótunin er sögð koma fram í yfirlýsingu frá al-Qaeda-samtökunum. Í henni felst stríðsyfirlýsing á hendur Danmörku og Svíþjóð, að sögn danska ríkisútvarpsins DR. Það hefur eftir dönsku leyniþjónustunni PET að brennur á Kóraninum hafi dregið neikvæða athygli að löndunum.

Jacob Kaarsbo, fyrrverandi greinandi hjá dönsku leyniþjónustunni, segir að taka beri ógnina mjög alvarlega. Þetta sé stærsta öryggisógn við Danmörku frá Múhammeðsteikningunum árið 2008. Þá kallaði danskur skopmyndahöfundur yfir Danmörku reiði íslamskra öfgamanna með því að birta teikninga af spámanni þeirra.

„Þetta er almennt ákall um árásir á Danmörku og Dani. Við vitum ekki hversu víða það nær, hversu áhrifamikið það er eða í hvaða kreðsum,“ segir hann við DR.

Danska utanríkisráðuneytið segist fylgjast með öryggismálum við sendiráð Danmerkur erlendis. Af öryggisástæðum ræði það ekki hvort eða til hvaða ráðstafana sé gripið þar.

Hægriöfgamenn sem hafa andúð á múslimum hafa ítrekað staðið fyrir brennum á Kóraninum, helgiriti múslima, í Danmörku og Svíþjóð undanfarin misseri. Slíkar brennur í Svíþjóð urðu meðal annars ástæða þess að tyrknesk stjórnvöld neituðu að leggja blessun sína yfir Atlantshafsbandalagsaðild landsins. Mótmælendur í Írak réðust einnig á sænska sendiráðið þar fyrr í sumar.

Sænsk stjórnvöld hafa talið að þau hafi ekki heimild til þess að banna samkomur þar sem Kóraninn er brenndur þar sem slíkt rúmist innan tjáningarfrelsi borgaranna.

Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegum inngangi hennar sagði ranglega að Ríki íslams hefði kallað eftir árásum.


Tengdar fréttir

Danir og Svíar í­huga bann á Kóran­brennum

Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem það segist íhuga að banna mótmæli sem ganga út á að brenna Kóraninn eða önnur trúarleg rit. Mótmælin ógni öryggi íbúa og skaði orðspor Danmerkur út á við. 

Kveiktu í sendiráði Svía í Írak

Nokkur hundruð menn ruddust inn í sendiráð Svíþjóðar í Bagdad í Írak í morgun og kveiktu í ráðuneytinu. Ráðist var á sendiráðið eftir vegna skipulagðra mótmæla í Svíþjóð þar sem til stendur að brenna eintak af Kóraninum fyrir utan sendiráð Íraks í Stokkhólmi í dag.

Svíar geti ekki reiknað með stuðningi Tyrkja vegna NATO-um­sóknar

Sænsk stjórnvöld ættu ekki að gera ráð fyrir stuðningi tyrkneskra stjórnvalda vegna umsóknar þeirra að NATO. Þetta sagði Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti í gær, fáeinum dögum eftir að kveikt var í eintaki af Kóraninum á mótmælafundi í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×