Fótbolti

Logi fer til Noregs: „Búinn að stefna að þessu síðan ég var lítill krakki“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Logi Tómasson og félagar í Víkingi leika í Sambandsdeildinni í sumar.
Logi Tómasson og félagar í Víkingi leika í Sambandsdeildinni í sumar. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Logi Tómasson er á leið til norska félagsins Strömgodset frá Víkingum. Logi er spenntur og segist hafa stefnt að atvinnumennsku af alvöru síðustu árin.

Logi Tómasson mun yfirgefa lið Víkings í Bestu deildinni fyrir lok mánaðarins. Hann er á leið til Strömgodset sem leikur í efstu deild í Noregi. 

„Bara mjög vel,“ sagði Logi í samtali við Vísi aðspurður hvernig þetta leggðist í hann.

„Ég er spenntur að fara í atvinnumennsku. Maður er búinn að stefna að þessu síðan maður var lítill krakki en af alvöru síðustu ár.“

Logi hefur verið hluti af afar sterku Víkingsliði síðustu tímabilin og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2021 og bikarmeistari síðustu þrjú árin. Þá er liðið sem stendur í efsta sæti Bestu deildarinnar og tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitum bikarsins fjórða árið í röð.

Strömgodset situr í 10. sæti norsku deildarinnar þegar deildin er rúmlega hálfnuð. Liðið siglir nokkuð lygnan sjó, er sjö stigum fyrir ofan Stabæk sem er í umspilssæti neðri hlutans og sjö stigum frá liðinu í 5. sæti deildarinnar.

„Þetta er flottur klúbbur sem spilar skemmtilegan fótbolta. Ég er aðeins búinn að skoða þá, það er vel hugsað um menn þarna í klúbbnum. Þetta er spennandi,“ sagði Logi ennfremur.

Logi á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Strömgodset og þá er ekki alveg ljóst hvenær hann heldur utan. Víkingar leika við Val í Bestu deildinni á sunnudag og verður Logi að minnsta kosti með Víkingum í þeim leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×