Innlent

Um­boðs­maður segir heimildir til fram­sals lög­gæslu­verk­efna of rúmar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.
Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.

Umboðsmaður Alþingis hefur sent forseta Alþingis ábendingu þess efnis að orðalag í lögreglulögum um heimildir ríkislögreglustjóra til að fela erlendum ríkisborgurum framkvæmd löggæsluverkefna á Íslandi sé of rúmt.

Ábendingunni var komið á framfæri í kjölfar svara frá dómsmálaráðuneytinu vegna fyrirspurna umboðsmanns um erlenda lögreglumenn sem hingað komu í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins í maí.

Í tilkynningu á vef umboðsmanns segir að af svari ráðuneytisins hafi mátt ráða að það teldi orðalag greinar í lögreglulögum sem heimilar framsal verkefna til erlendra aðila ekki of víðtækt en að tekið yrði til athugunar hvort tilefni væri til að setja nánari reglur um samstarf lögreglu við erlend löggæsluyfirvöld og alþjóðastofnanir.

„Ekkert kom þó nánar fram um markmið eða efni slíkra reglna né hvort tekið yrði tillit til sjónarmiða í fyrirspurnarbréfi umboðsmanns. Þá er ljóst að ráðuneytið lítur svo á að það hafi verið fyllilega í samræmi við heimildir ríkislögreglustjóra að fela erlendu lögreglumönnunum umrædd verkefni,“ segir á vef umboðsmanns.

Umboðsmaður bendir á að heimild ríkislögreglustjóra hvað þetta varðar sé hins vegar ekki ótakmörkuð. Lögregluvald heyri til kjarna framkvæmdavaldsins og því þurfi að gera ríkari kröfur en ella til framsals slíkra heimilda.

„Í ljósi túlkunar ráðuneytisins á ákvæðinu hefur umboðsmaður því sent forseta Alþingis ábendingu þar að lútandi. Orðalag ákvæðisins sé of rúmt og til þess fallið að valda misskilningi um markmið þess og önnur atriði sem við eigi. Samkvæmt lögskýringargögnum hafi verið gert ráð fyrir því að heimild ríkislögreglustjóra, að þessu leyti, kynni að verða nánar afmörkuð með frekari reglum dómsmálaráðherra. Svör ráðuneytisins gæfu ekki tilefni til að ætla að með slíkum reglum, ef þær yrðu settar, yrði sérstaklega tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem umboðsmaður hefði komið á framfæri við það.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×