Samstarf

Góður af­sláttur af fjöl­mörgum vörum hjá Svefn & heilsu

Svefn & heilsa

Svefn & heilsa er netverslun vikunnar á Vísi, dagana 21.-25. ágúst, og verður af því tilefni boðið upp á góðan afslátt af fjölmörgum vörum.

„Meðal vandaðra vara sem verða á afslætti verða íslensku dýnurnar Ýmir, Valhöll, Frigg, Óðinn og Iðunn en þetta eru langvinsælustu dýnurnar okkar og verða á 10% afslætti þessa vikuna,“ segir Elísabet Traustadóttir, framkvæmdastjóri og annar eigenda Svefn & heilsu. „Þess má geta að undanfarinn áratug hefur um fjórðungur landsmanna sofið í heilsudýnu frá okkur. Sængurverasettin verða á 25% afslætti í þessari viku og einnig lökin, hlífðardýnur, sængur, sloppar, handklæði og ýmislegt fleira.“

Svefn & heilsa býður líka upp á frábæra svefnsófa með góðum dýnum og í nokkrum stærðum og litum. Þeir kosta frá 259.900 kr.

Þótt Svefn & heilsa sé þekktust fyrir vörur sem tengjast svefni býður verslun líka upp á gott úrval vandaðra húsgagna. „Þar má nefna mikið úrval af gæða hægindastólum á góðu verði,“ segir Elísabet. „Við bjóðum upp á marga mismunandi valmöguleikar í verðum á bilinu frá 99.900 - 369.900 kr.“

Nótt heilsudýnan inniheldur íslenska ull sem hægt er að nota á stillanlegum botnum. „Nótt heilsudýnan verður á tilboði þessa vikuna í verslun okkar,“ segir Elísabet.

Nánari upplýsingar á svefnogheilsa.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×